Dvöl - 01.05.1909, Blaðsíða 1

Dvöl - 01.05.1909, Blaðsíða 1
Blaðið kostar hérá landi i kr. 25 au., erlendis 2 kr. Helmingur borgist fyr ir 1. júlí, en hitt við ára- mót. D V Ö L. Uppsögn skrifleg og bundin við 1. okt. en ó gild nema kaupandi sé skuldlaus við blaðið. Af- greiðslan er á Laugaveg 36. 9. ÁR. REYKJAYIK, M A I 190S). NR. 5. í forsælu Er hjarta mitl í liarmi slœr með hulin sár, mér vinur enginn er svo kœr sem eldheitt tár. Pað létlir instu andans harma að eg grœt, og fram á hulda föður arma fallast lœt. Ó, gullna von! Af gnœgðum þintím gef mér Ifós! og lát ei blikna á brautum minum blóm og rós! llallgr. Jónsson. Vinskapur (Friendship). A framhald af greininni „Kraftur viljans". Lauslega þýtt úr ensku. (Framh.). Hreinn, óeigingjarn vinskapur, er sem bjartur logi, sem ekki sendir frá sér nemn eigingirnis- reykjarmökk, en það litur út fyrir að hann eigi sér örskjaldan stað í mannlííinu. Uppruni hans er guðlegs eðlis, athafnirnar himneskar og af- leiðingárnar heillavænlegar fyrir sálina af því hann er hámark allrar jarðneskrar hlessunar; þess vegna hefir veröldin líka stælt hann á sinn auðvirðilega hátt, já, hún hefir marg olt hjúpað sig hinum egta málmi svo þykkt að ekkert nema timinn heíir orkað að leiða í ijós, þá sví- virðilegu undirhyggju sem duldisl i tilgangi hcnnar saurugu vina. Blekking og táldrægni virðist djúpt gróðursett í sumra manna náttúru, og reið-prikið sem þeir ferðast á i gegnum lífið. Hjartað er fram úr máta svikafult; hver getur þekt það? Varfærnin er sögð foreldri óhultleik- ans, jafnvel þó hún hafi oftlega verið svikin með Júdasar-kossi. Hinir allra varfærnustu menn hal'a oft verið illa sviknir og illa leiknir af lélegum svikurum. Vér æltum því að vera ákaílega varasöm i því að velja oss vini, og þó við séum það, mun- um vér ei að siður oft komasl að raun um að oss hefir skjátlast í valinu. Þar á móti getur mótlætið kent oss að þekkja þá, þá munu sólskins-vinirnir ílýja oss eins og sjálfur dauðinn sé á hælunum á þeim, — jíL eins og rottur flýja úr hlöðu sem eldur er kominn í! Niu tiundu, af þeim sem hafa notið mestn góðgjörðanna, munu þá verða fyrstir að yfirgefa lasta og áfella. Vinskapur sem ein- ungis er byggður á eigingirnd, endar jafnan i flótta, á því augnabliki, sem viðkomandi hefir fullnægt sínu eigingjarna augnamiði — eða hefir beðið ósigur. Hreinn og sannur vinskapur er hlómstur, sem vex jafnt á öllum tímum ársins; maður getur fundið það í blóma á snjóþöktu fjöllunum á norður Rússlandi, alt eins og í sólriku dölun- um á suður ítaliu; og alstaðar hressir það oss með ágætu óútmálanlegu töfrafegurðinni sinni. Ekkert rannsakað strand-kort getur sSTnt vin- skaps-lielgidóminn, engin alþjóðleg takmarka- lína, engin klungrótt fjöll eða snarbrattar dala- hlíðar orka að stemma stiga fyrir vöxt hans og viðgang. Hvar sem hann er vökvaður með dögg kærleikans og ástúðarinnar, þar getur maður verið viss um að finna hann hreinan og sannan. Vinskapurinn stendur i nánu sambandi við tvíbura-systur sína, góðgirnina hann gengur fúslega inn i sorgar- og ógæfuhúsið og stráir þar út frá sér hamingju og friði. Hann heim- sækir hið einmana og' sorgmædda hjarta og' talar við það hughreystingar og gleði orð. Hans al- máttugu áhrif flögra yfir mótsíriðandi herflokkum og umvefur svarna óvini með hluttekningu og góðsemi. Hans eilífi algildi ilmur, dreyfir sér- hverjum eitruðum öfundar hugleiðingum, og veitir andanum, heilaga, ómetanlega ánægju, sem veröldin með allri sinni viðhöfn og mætti orkar ekki að veita. 5 Urvals samræður. Eftir Platon. Pýtt úr grisku af prófessor G. .1. Heise. (Framh.) -— Er þá ekki náttúrlegt, sagði hann, að eftir þessu öllu, hljóti einhver þesskonar ályktun að verða drottnandi á meðal hinna sönnu heim- spekinga, og að þeir tali hver við annan hér um bil á þessa leið: Það lítur út fyrir, eins og ein- hver sligi flytji okkur með hjálp skinseminnar til útgöngunnar á rannsókn vorri; af því að svo lengi sem vér höfum líkama og sála vor er sameinuð slíku skaðræði, þá getum vér aldrei á nægjanlegan hátt eignast það, sem vér keppum eftir, og þetta er þó eins og við höfum sagt, það sanna. Af því að likaminn veldur oss þúsundir af óþægilegheitum sökum hins nauðsynlega viður- væris. Enn fremur, þegar veikindi sækja á hann,

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.