Iðnneminn - 01.01.1934, Side 1
1. árgangur Janúar 1933 3. tölublað
DRYKKJARÁHÖLDIN í IÐNSKÓLANUM
Þegar greinin um drykkjar-
áhöldin kom í 1. tbl. Iðnnem-
ans, var strax hægt að sjá að
hún var rituð af sterkum vilja
til þess að fá þessu breytt til
batnaðar fyrir nemendur, bæði
í Gagnfræðaskóla Reykjavíkur
og Iðnskólanum. Sú grein var
all ítarleg, og er varla hægt að
rita meira um þennan vask og
þessa merkilegu krús. En þó
vildi ég aðeins benda á eitt at-
riði‘ sem er eftirtektarvert, og
það er, að þegar komið er inn
í skot það, sem vaskurinn
stendur í, þá leggur á móti
manni megna ólykt úr vaskin-
um, Það er lofttegund, sem
myndast niðri í rörunum, og
rýkur upp, og er það vafalaust
H2S.
Það yrði langt mál að fara
að telja upp allan þann óþrifn-
að, og alla þá smitunarhættu,
sem af þessum steinaldar-
drykkjaráhöldum stafar. Hvar
er menning 20. aldarinnar?
Hvar hinn aukni þrifnaður og
hvernig stendur á því að slík-
ur ófullkominn skóli, sem Iðn-
skólinn er skuli vera til? Þess-
um spurningum getur liver og
einn svarað sjálfur, vegna þess
að í brjósti hvers einasta und-
irokaðs þegns þjóðfélagsins býr
sá kraftur, sem einn er fær
fullkomlega að fullnægja kröf-
um sjálfs sín og komandi kyn-
slóða um bætt lífskjör í smáu
sem stóru, því að við getum
einskis vænst af hinni hrynj-
andi borgarastétt, sem fyrir
löngu er orðinn hemill á alla
þróun og þroska einstaklings-
ins og þá um leið þjóðfélags-
Þarna sj'áið þið hina margumtölugu krús.
Myndin sýnir vel afstöðuna, stigann
þarna fyrir ofan, þar sem alltaf er sí-
felldur umgangur af fjölda manns, og
rykið þyrlast undan fótum þeirra og líð-
ur svo niður í krúsina. Þetta áhald eiga
svo þeir 400 nem, sem stunda nám í
þessu skólahúsi að nota til að svala
þorsta sínum. Þetta er einn liður í um-
hyggju borgarastéttarinnar gagnvart æsku-
lýðnum.
ins sem lieildar, því frjáls þró-
un einstaklingsins er skilyrði
fyrir frjálsri þróun heildarinnar.
Á fundi, sem haldinn var í
Málfundafélagi Iðnskólans 17.
des. var til umræðu m. a.
drykkjarvatnið, tóku allir til
máls, og voru allir á eitt
sáttir með það, að það væri
sjálfsögð skylda skólanefndar
að setja upp nýtísku drykkjar-
áhald í skólann. Og var kosin
nefnd til þess að flytja skóla-
stjóra kröfur fundarins. Nefnd
þessi átti tal við skólastjóra og
tjáði honum kröfur fundarins.
Taldi hann það eigi framkvæm-
anlegt að setja upp drykkjará-
hald í skólann núna í jólafrí-
inu, eins og fundurinn ætlað-
ist til, en hann lofaði að leggja
kröfur fundarins fyrir skóla-
nefnd og Iðnaðarmannafélagið,
og hann bjóst ekki við að þetta
kæmi til framkvæmda núna
fyrst um sinn. Eftirtektarvert
er það sem skólastjórinn sagði,
að það væri ekki meira hrein-
læti í því að hafa »gosbrunn«
heldur en að drekka úr bolla
eða krús, fyrir 3—400 manns.
Nei, Iðnnemar við verðum eð
sýna skólanefnd það að okkur
sé full alvara með það að fá
þessu kipt í lag og það hið
allra bráðasta. í fyrra gátum
við með samtökum okkar knú-
ið skólastjórnina til að setja
upp klósett í stað útikamrana,
sem við allir þekkjum. Eins
er okkur mögulegt að fá ný-
tísku drykkjaráhald, ef við sýn-
um skólastjórninni það að okk-
ur sé full alvara og sýnum
henni það að hún geti ekki
troðið kröfur okkar niður í
skarnið án þess að við gefum
hljóð frá okkur. J. R.
i