Iðnneminn - 01.03.1934, Side 1
1. árgangur
Mars 1934
6. tölublað
Iðnskólin
Rafmagnsfræði og
teikning.
Þessum námsgreinum, eins
og mörgum öðrum, er mjög
ábótavant. Hvað rafmagnsfræð-
inni viðvíkur, er tíminn svo
lítill, sem henni er ætlaður,
að orðið hefir að taka talsvert
af teiknitímanum til hennar og
er það algerlega óhæft, en samt
verðum við að hlaupa aðeins
lauslega yfir helstu atriðin. En
til þess að geta orðið starfi
okkar vaxnir, er okkur rafvirkj-
unum nauðsynlegt, að fá full-
komna kenslu í þessari grein,
því að öðrum kosti getum við
ekki fullnægt þeim kröfum,
sem gerðar eru til okkar.
Til þess að geta eitthvað
komist niður í rafmagnsreikn-
ingi, verður kennarinn fyrst að
kenna okkur almennan reikn-
ing í jöfnum og flatarmáli og
fer mikið af tímanum í að
kenna okkur þetta. Þetta leiðir
hin slæma skipulagning á reikn-
ingnum af sér. Kennarinn þyrfti
vitanlega að koma undirbúinn
í tímana, en það getur hann
ekki, því hann hefir ekki laun
nema rétt fyrir þann tíma, sem
hann er í skólanum. Teikning-
in er ekki heppileg, ætti að
vera meira í sambandi við raf-
magnsfræðina og vitanlega að
skifta henni eftir því, hvað
nemendur væru að læra, en á
því sviði er svo slæmt skipu-
lag, að það mun varla hægt
enn þá, en þá ætti að kenna
jafnhliða húsalagnir og teikn-
ingar af rafmagnsvélum. Heppi-
legra væri að kenna í náms-
skeiðum, eins og tíðkast mun
víða erlendis, gera ritgerðir,
teikna upp skema o. s. frv.
Húsgagnateikning.
Iðnteikning fyrir húsgagna-
smíðanema er kend í skólan-
um í tvo vetur. Á þeim tíma
munu þeir flestir læra það í
teikningu, sem þeim er nauð-
synlegast að kunna, en til meira
er ekki að ætlast eins og allri
kenslu er varið í skólanum.
Það, sem nemendurnir læra
í þessari námsgrein sem öðr-
um, læra þeir í skólanum, og
alt, sem þeir vinna að teikn-
ingunum, gera þeir einnig í
skólanum, því að vinna að þeim
heima, kemur varla til greina.
Til þess er enginn tími, því að
þegar skólinn loksins er úti,
er komin nótt.
Kensla í þessari námsgrein
getur því talist bera allgóðan
árangur eftir atvikum.
Flatar- og rúmteikning.
Flatarteikningin er hin fyrsta
teikning, sem nemendur læra
í skólanum. Hún er kend fyrsta
veturinn, en rúmteikning ann-
an. Þessar teikningar eru und-
irstöðuatriði, sem læra þarf áð-
ur en byrjað er á fagteikning-
unni, þ. e. a. s. þær eru það
fyrir meiri hluta nemenda.
8ída§ti fundur.
Fundur var haldinn í mál-
fundafélaginu sunnudaginn 4.
mars, sem á voru mættir kring-
um 40 nemendur. Hafnfirsk-
um iðnnemum var boðið á fund-
inn, en vegna illveðurs komu
þeir ekki í þetta sinn. Fyrir
fundinum lágu mörg viðfangs-
efni: 1. Skemtinefndin skilaði
störfum. 2. Kosin ritnefnd fyr-
ir þetta blað. 3. Kosin skemti-
nefnd fyrir næsta dansleik, sem
haldinn verður 24. þ. m. 4.
Kosin skemtinefnd fyrir loka-
dansleikinn, sem mun verða
síðast í næsta mánuði. En vegna
þess, að margir nemendur hafa
óskað, að skemtiskrá verði höfð
á þeim dansleik, því að vel
þótti takast á aðaidansleiknum,
var ákveðið, að kjósa nefndina
strax til þess að hún gæti haft
nægan undirbúning. Ákveðið
var, að fá Verslunar- eða Menta-
skólanemendur á næsta fund,
ef hægt væri.
Þar næst var tekið til um-
ræðu næsta mál, sem hét»Vinna
og mentun«. Framsögumaður
lýsti málinu í öllum helstu at-