Iðnneminn - 01.05.1994, Page 1
IÐNNEMINN
62. ÁRG. 2.TBL. MAÍ 1994
IMSÍ 50 ÁRA
Hagsmunabarátta í hálfa öld
1 9 4 4 19 9 4
EFNISVFIRLIT:
INSÍSO RRR 1
MarTanna H. Ragnarsdóllir
1. Mflí RVRRPINSÍ 2
Framhvæmdasl'jörn
RITSTJÓRRPISTILL 4
Sveinbjörn Þormar
UM ORLOFSMRL S
Brjánn Jönsson
N? STJÖRNÍ SIR G
Sveinbjörn Þormar
ÖM RTVINNULEVSISBÖTRRÉTT G
Páll Svansson
TÖNLISTRRGRGNRVNI 7
Páll Svansson
ROSNINGRRNRRÍ SUÐUR-RFRÍHU 8
Sigurlaug Gunnlaugsdóllir
UM RÉTTINDRMRLIÐNNFMR 10
Hrislinn H. Einarsson
RLDREIRFTUR „NÚLLSAMNINGfl” 11
Þörir Harl Jönasson
IÐNFÉLRGSFRŒÐI 11
Ölafur Þ. Þöröarson
ÞINGRELGL SMRSRGR 18
Þörarinn Þörarinsson
JÖNSMESSUHRTÍÐIÐNNEMR 14
Sveinbjörn Þormar
UM NRMÍ BÖHRGERÐ 15
Páll Svansson
MVNOVERIÐ 1G
ÖrTímanuml974
Nú á þessu ári verður Iðnnema-
samband Islands 50 ára og af því
tilefni verður boðið uppá fjöl-
breytta dagskrá sem skipulögð er
með það í huga að allir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Afmælisárið hófst með pall-
borðsumræðum þann 5. febrúar sl.
þar sem rætt var um framtíð ís-
lenskrar verkalýðshreyfingar.
Þann 12. apríl var svo fundur um
félagafrelsi. Þessir fundir voru
haldnir á vegum kjaramálanefndar
INSI og tókust þeir með ágætum.
Það sem mest ber á í maímánuði
eru 1. maí hátíðarhöldin. Þá verð-
ur farið í 1. maí göngu og vonumst
við til að allir sjái sér fært um að
mæta í hana því við iðnnemar ætl-
um ekki að sitja auðum höndum,
hvorki þar né annarsstaðar.
„Hagsmunabarátta í hálfa öld“.
Einnig er fólki velkomið að taka
þátt í undirbúningi fyrir hátíðar-
höldin.
Sumardagskráin er ekki af verri
endanum. Ákveðið hefur verið að
halda íþróttamót fyrir alla iðn-
nema á landinu og aðstandendur
þeirra. Þetta íþróttamót er
svokölluð Jónsmessuhátíð og verð-
ur hún haldin á Laugarvatni helg-
ina 24. til 26. júní.
Þann 27. ágúst verður Bjarna-
borgin tilbúin til afhendingar en
hún er í eigu Félagsíbúða iðnnema
og verða þar leiguíbúðir fyrir iðn-
nema. Húsið verður opið öllum til
sýnis.
Opin vika verður haldin í húsa-
kynnum INSÍ að skólavörðustíg
19. vikuna 19. til 23. september og
þar verður boðið upp á kvik-
myndasýningu og ljósmyndasýn-
ingu með myndum allt frá árinu
1944 til dagsins í dag. Einnig verð-
ur bókmenntakvöld þar sem lesið
verður uppúr nýrri bók Helga
Guðmundssonar um INSÍ. Fleiri
uppákomur verða en þær eru enn í
undirbúningsvinnu. Síðan á sjálf-
an afmælisdaginn þann 23. septem-
ber heimsækja ráðamenn alla iðn-
menntaskóla landsins, opnir dagar
verða í öllum iðnmenntaskólum og
boðið verður upp á afmælistertur
bakaðar af iðnnemum. Að lokum
verður svo haldinn dansleikur á
Hótel Sögu eða Hótel íslandi að
kvöldi 24. september. Þar verður
endurlífguð stemmningin frá 1944.
Gaman væri ef fólk gæti grafið upp
gömul samkvæmisföt frá þeim
tíma og mætt í,þeim á dansleikinn.
Eg vona að sem flestir finni eitt-
hvað við sitt hæfi og taki þátt í af-
mælisárinu með okkur. Einnig
væri gaman ef gamlir iðnnemar sjái
sér fært um að vera með okkur og
rifja upp gömlu góðu skólaárin.
Maríanna K. Ragnarsdóttir
meðstjórnandi í fr.kv.stjórn INSÍ
BARÁTTUKVEDJUR
TIL IÐNNEMA Á 1. MAÍ