Iðnneminn - 01.05.1997, Blaðsíða 4
Fossberg
Á því herranns ári 1927, nánar tiltekið 27.
mars, var stofnað fyrirtæki í Reykjavík sem væri
kannski ekki fréttnæmt nema fyrir þær sakir að
fyrirtækiö hefur verið starfrækt síðan, sem ekki
mörg fyrirtæki geta státað af. Þetta fyrirtæki
fékk nafnið G J Fossberg eftir stofnanda þess
Gunnlaugi J. Fossberg, vélstjóra. Er fyrirtækið
að mestu í eigu fjölskyldu hans enn i dag. Er
Gunnlaugur dó árið 1949 tók Bjarni R.
Jónsson við störfum forstjóra, hafði Bjarni
unnið hjá fyrirtækinu frá 1930. Er Bjarni R.
Jónsson lét af störfum 1989 tók núverandi
forstjóri við störfum hans. Er það Einar Orn
Thorlacius en hann cr dóttursonur Gunnlaugs
J. Fossbergs.
Fyrstu sjö ár fyrirtækisins var vélaverslunin til
húsa í Hafnarstræti 18 en flutti svo í kjallarann
á Vesturgötu 3 árið 1935. Fram til 1965 voru
skrifstofurnar til húsa á efri hæðinni en
verslunin á þeirri neðri. Eftir að hafa verið á
Vesturgötunni í þrjátiu ár flutti fyrirtækið sig
um set og fluttist á Skúlagötu 63, en það hús
reisti fyrirtækið á árunum 1963-1965.
Fyrirtækið er enn þar til húsa, bæði verslunin
og skrifstofurnar.
Fyrirtækið hefur sérhæft sig í að þjóna ís-
lenskum málmiðnaði með vönduðum rekstrar-
vörum, handverkfærum og járnsmíðavélum.
G J Fossberg er í sókn á markaðnum um
þessar mundir. Þrátt fyrir stóraukna samkeppni
hefiir G J Fossberg notið mikillar söluaukning-
ar undanfarin ár og fjárhagur fyrirtækisins er
mjög sterkur. Ávallt hefúr veriö lögð mikil
áhersla á skilvísi við kröfuhafa.