Iðnneminn - 01.05.1998, Blaðsíða 3
Hæ hó jibbí jei, þaö er kominn fyrsti maí !!
Jæja! kæru lesendur. Nú þegar Iandinn hefur lokiö viö aö innbyröa páskaeggin, skólarnir eru farnir af
stað aftur og styttist í að nallinn verði sunginn á Lækjartorgi, þá birtist „það” sem þruma úr heiðskíru
lofti. Iðneminn læðist inn um bréfalúguna, öllum að óvörum eins og hann hefur gert á t\reggja mán-
aða fresti undanfarin ár. Það eru kannski ekki nein nýmæli, en fyrir okkur sem hafa staðið í þessari út-
gáfu hefur þetta verið reynsla út af fyrir sig.
Þetta er í þriðja sinn sem útskriffarnemendur í hótel- og matvælagrein sjá um útgáfu blaðsins og nú í
samvinnu við Iðnemasambandið. Afraksturinn af útgáfunni verður svo notaður í vor til að fjármagna
útskriftar og vísindaferð til Katalóníuhéraðs á Spáni. Þangað er förinni heitið að loknum sveinsprófum
og er ætlunin að skyggnast inn í matar og vínmenningu innfæddra og að sjálfsögðu að sleikja sólina
þegar hún gefst.
Með hjálp frá góðfusum kennurum og skilningsríkum ættingjum hefur allur hópurinn lagt sitt af mörk-
um við útgáfiina. Sumir sátu sveittir við skriffir á meðan aðrir söfnuðu auglýsingum af miklu harðfylgi.
Utkoman sést á næstu síðum. Góða skemmtun og gleðilegt sumar.
Fyrir hönd ritnefndar:
Gunnar Axel Axelsson
Sendum félögum okkar og fjölskyldum
þeirra hátíðarkveöjur
MATVÍS
Matvæla- og veitingasamband íslands
Félag nema í matvæla- og veitingagreinum
Félag framreiðslumanna
Félag íslenskra kjötiðnaðarmanna
Félag matreiðslumanna
Bakarasveinafélag íslands
Þökkum samstarfið á árinu
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
AUGLÝSING UM SVEINSPRÓF
Svcinspróf í löggiltum iðngreinum fara fram í maí og júní 1998.
Umsóknarfrestur er til 15. mai i framreiðslu og matreiðslu, en tíl 25. maí i öðrum iðngreinum.
Nernar í hótel- og matt'ælagreinum sæki um hjá Fræðsluráði hótel- og matvælagreina og nemar í
rafiðngrcinum sæki um hjá Fræðslumiðstöð rafiðnaðarins.
Nemar á vegum skóla hafi samband við deildarstjóra skólans í viðkomandi iðngrein.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu og á heimasíðu ráðuneytisins,
http://frodi.stjr.is/mrn
Menntamálaráðuneytíð, Sölvhólsgötu 4, 2. hæð, REYKJAVÍK.
Sími 560 9500
ÍSBERG
6
Norræna nemakeppnin í matreióslu oq
framreióslu 1998
7
1. maí ávarp INSf
9
Súpukeppni Knorr á fslandi
10
Nýjar skrifstofur INSf
12
HóteL oq matvælaskólinn í Kópavoqi
14
Hátíóarkvöldveróur ötskriftarnema
16
Samtök íslenskra vínþjóna
16
Nýstofnað nemafélag Noróurlands
I ð n n e m i n n
3