Iðnneminn - 01.05.1998, Side 9
Súpukeppni
Knorr á íslandi
Að taka þátt í keppni er öllum nauðsyn-
legt þar sem hver og einn verður að
standa á eigin fótum og treysta á sjálfan
sig. Fyrir matreiðslunema er þetta nauðsynlegt
þar sem mikil áskorun og þroski hlýst af því að
taka þátt í keppni sem þessari. Fyrirtækið As-
björn Olafsson hefur síðastliðin t\'ö ár haldið
súpukeppni fyrir matreiðslunema þar sem hrá-
efnisval er með öllu frjálst með einni undan-
tekningu þó, en það er að allir keppendur verða
að nota Knorr krafta. Hefúr þetta mælst vel fyr-
ir og hefur þáttaka verið mjög góð í þessi tvö
skipti sem keppnin hefúr verið haldin og hefúr
þáttökufjöldi verið um 20 manns. Þar sem
nernar koma úr öllum áttum má búast við ólík-
um súpum og sú er raunin. Má segja að allar
þær súpur sem voru í keppninni var ekki hægt
að líkja neinum tveimur saman þar sem greini-
leg vídd er í hugmyndaflugi íslenskra mat-
reiðslunema nú til dags. Flestar þær súpur sem
koma fram i keppni sem þessari er að þær eiga
það sameginlegt að vera bragðgóðar, frumleg-
ar, vel upp settar og ckki síst mjög litríkar.
Jafnvel má halda því fram að sumar súpur
yrðu ekki frambornar á íslensku veitingahúsi,
alla vega ekki nú til dags, þar sem þær eru ívið
of litríkar og ffumlegar, en ekki er gott að segja
til um það þar sem ffamþróunin er mjög hröð
og fljót að breytast.
Keppnin í ár var mjög skemmtileg þar sem
mjög mikil vídd og frumleiki var til staðar. Sig-
urvegari í súpukeppni Knorr i ár heitir Oskar
Oskarsson. Oskar er matreiðslunemi í Perlunni
á Oskjuhlíð og hefúr verið nemi þar í rúmlega
eitt ár. Asbjörn Olafsson gaf glæsileg verðlaun
og í öðru sæti lenti Örn Helgason og Axel Þor-
leifsson í því þriðja.
Verðlaunahafinn Óskar Óskarsson var svo
vænn að gefa okkur uppskrift af Knorr súpu ár-
sins 1998 en hann þróaði hana ffá öðrum
grunni og samhæfbi hana að Knorrkröftum, en
að aðalhráefni er hún af rjúpu. Eftirfarandi er
verðlaunasúpan árið 1998 sem hann nefnir ein-
faldlega Rjúpusúpa:
1/2 dl olía
1 rjúpa
1 kóngasveppur
1/2 gulrót
3 cm blaðlaukur
1/4 laukur
1 1 vatn
1/2 tcsk timian
1 /2 tesk svartur pipar
4-5 stk einiber
50 gr smjörbolla
1 1/2 sl madeira
5 dl rjómi
Knorrnautakraftur
Knorrkjúklingakraftur
Olían er hituð í potti, brúnið smátt skorið
grænmetið ásamt rjúpubeinunum, innmat,
bringum og kóngasveppum. Þegar þetta er
orðið vel brúnað er vatnið sett út í og kryddað
með berjum, pipar og timian. Sjóðið soðið í
25 mín. Sigtið soðið og bakið það upp bætið
rjómanum út í ásamt madeiravíninu. Látið
sjóða í 3 til 4 mín. Að endingu smakkið til með
Knorrkröftunum.
Rétt áður en súpan er gefin pískið 5 eggja-
rauður yfir vatnsbaði þar til þær verða stífar
blandið þá 2 matsk af rjóma við og kryddið
með jarðsveppa safa og Knorr armoat kryddi
og gefið ofan á súpuna. Þess má geta að As-
björn Ólafsson og G.V. Heildverslun styrktu
Óskar í keppninni.