Iðnneminn - 01.05.1998, Page 13
ingaskipum og sl. haust var matvælasvið
Fjölbrautaskólans í Breiðholti flutt í hinn
nýja skóla. Þá hófst einnig kennsla í meist-
araskóla hótel- og matvælagreina sem er nýj-
ung á þessu sviði.
Hér verður ekki látið staðar numið, unnið
er af krafti við að innrétta neðstu hæð verk-
námshússins sem hýsa mun kennslu fyrir
kjötiðn, fiskiðn og smurbrauð, auk inn-
kaupasvið skólans. A næstu árum er stefnt að
því að innan Hótel og matvælaskólans verði
námsmöguleikar margir, bæði á stuttum
starfstengdum brautum og samningsbundið
iðnnám til sveinsprófs og meistararéttinda.
Menntamálaráðherra hefur nú skipað starfs-
greinaráð hótel og matvælagreina sem mun
verða stefnumarkandi á þessu sviði.
Hótel og matvælaskólinn í MK er einnig
miðstöð upplýsinga, þróunar og þjónustu. A
bókasafni skólans er hafin uppbygging á
þessu sérsviði og þar hafa margir sýnt skólan-
um mikinn velvilja með góðum bókagjöfúm.
Ber þar hæst bókasjóð sem ungir matreiðslu-
menn, framreiðslumenn, bakarar og kjötiðn-
aðarmenn, er saman mynda klúbbinn Freist-
ingu, stofnuðu. Stofnfé var afrakstur af gala-
kvöldverði sem þeir efndu til í þessum til-
gangi. Þetta sýnir betur en margt annað
hversu metnaðarfúllir fagmennirnir eru og
áhugasamir um að búið verði vel að greinun-
um til framtíðar.
Með tilkomu breyttrar aðstöðu opnast
möguleikar til frekari þróunar náms.
Ákvörðun var strax um það tekin að þeir
nemendur sem hafið höfðu nám í öðrurn
skólum skyldu ljúka eftir því skipulagi sem
þar gilti. Elcki hafa verið unnar nýjar náms-
skrár í matreiðslu, framreiðslu og bakaraiðn
en nokkrar áherslubreytingar hafa átt sér stað
í samráði við menntamálaráðuneytið og fag-
félögin. Má þar nefna aukna áherslu á tölvu-
nám, gæðakerfi, breytingar í verklegri
kennslu og meiri fagtengingu inn í bólcnám-
ið. Nú er unnið að nýrri námsskrá fýrir mat-
artækna og endurskoðun á námsskra kjöt-
iðnar.
Áltersla hefur verið lögð á samstarf at-
vinnulífs og skóla en eins og kunnugt er
komu fagfélögin ntjög að uppbyggingu skól-
ans með faglegri ráðgjöf og tækjagjöfúm. I
framhaldinu hafa farið fram fagkeppnir, sýn-
ingar og námskeið s.s. keppnin um mat-
reiðslumann og framreiðslumann ársins og
sýningin matur '98. Þá hafa fjölmargir er-
lendir fagmenn heimsótt skólann og borið
lof á allan aðbúnað.
Að mörgu er að hyggja þegar byggður er
upp nýr vettvangur sem sameinar undir einu
þaki þær hótel- og matvælagreinar sem áður
voru kenndar í þremur skólum, þ.e. Hótel-
og veitingaskóla Islands, Iðnskólanum í
Reykjavík og Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti. Með samstilltu átaki kennara, nem-
enda, stjórnenda og fagfélaganna hefúr þetta
tekist. Það er trú þeirra sem að málinu hafa
komið að þegar fram líða stundir muni þetta
efla greinarnar hverja um sig og stuðla að
aukinni samvinnu og skilningi þeirra í milli.
Sú uppbygging sem átt hefur sér stað mark-
ar tímamót í sögu hótel- og matvælagreina á
íslandi og um leið þáttaskil í sögu Mennta-
skólans í Kópavogi.