Ljósberinn - 22.07.1922, Side 5
LJÓSBERINN
229
svona illa með gaukinn okkar?“ „Slæmur félagsskap-
ur“, svaraði faðir þeirra. Gaukurinn hermdi eftir
honum og sagði ógn vælulega: „Slæmur félagsskap-
ur! Slæmur félagsskapur!“
það er sannur málsháttur, börnin góð: „Vondur
félagsskapur spillir góðum siðum“ (1. Kor. 15, 33).
J>ess vegna segir líka ritningin á öðrum stað: „Son
minn, þegar skálkar ginna þig, þá gegn þeim eigi“.
(Orðskv. 1, 10.
Hinn vonda soll varast,
en vanda þitt mál,
og geymdu nafn Guðs þíns
í grandvarri sál,
ver dyggur, ver sannur,
því Drottinn þig sér,
haf daglega Jesúm
i verki með þér. (B. J.).
-----O-----
Sólskinsvísur.
í dag er auðséð, Drottinn minn,
dýrð þín gæzkuríka;
maður heyrir málróm þinn,
maður sér þig hka.
Fögur sjón er sól og vor,
sumar, haust og vetur,
auðlegð þína og yndisspor
enginn talið getur. (P. Ó.).
O