Ljósberinn


Ljósberinn - 10.05.1924, Qupperneq 9

Ljósberinn - 10.05.1924, Qupperneq 9
LJÓSBERINN 145 það sloknaði ekki á lampanum, Guðs orð lýsti bernsku hans og æsku. Andlit sveinsins ljómaði af gleði, er hann svaraði Drotni: „Tala þú, því að þjónn þinn heyrir“. J>að var kallað á hann: „Kom þú og sjá“. Hann sá fegurð Guðsríkis. það var kallað á hann: „Fylg þú mér“. JJá rödd þekti hann, og svaraði með söng: Eg veit, að eg er velkominn, þú vinur drengja, í faðminn þinn, og legg því veg og vilja minn á vald þér, Jesús Kristur. Á æfi minnar árdagsstund eg alt þér gef, mitt líf, mitt pund, og gef það strax með ljúfri lund, þú lífsins herra, Jesús. það er sem eg heyri hann syngja þennan sálm, og eg sé andlit hans ljóma af trúargleði æskunnar. Hann gaf sig allan, vígði Guði líf sitt, og þess vegna var æska hans í skærri birtu. Eg hugsa um hina ungu menn, sem urðu hinir fyrstu lærisveinar Jesú. þeir voru boðnir velkomnir á hinn fegursta hátt. Jesús sagði: Sannlega, sannlega segi eg yður: J>ér munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og stíga niður yfir mannssoninn (Jóh. 1, 52.). Mér finst eg sjá dýrðarhlið umvafið blómum, sólskinið er svo fag- urt, himininn er opinn og englar stíga upp og stíga niður, og frelsarinn tekur á móti vinum sínum og leið- ir þá inn um hliðið, inn á hinar grænu grundir. —

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.