Ljósberinn


Ljósberinn - 12.01.1929, Síða 6

Ljósberinn - 12.01.1929, Síða 6
14 LJOSBERINN arl'erðir. Drengirnir riðu hestunum til skiftis en stúlkurnar ösnunum; urðu pær Pauline og Karoline brátt leiknar í þeirri list að sitja asnana og ríða þeirn — pær voru þá 12 og 10 ára. Elise var elzt, hún var um 15 ára; en henni þótti það fyrir neðan sig að ríða asna. Pað gat hún ekki gert sér að góðu. Fengi hún ekki að ríða öðrum hvorum hestinum, þá vildi hún heldur ekki »taka þátt í leiknum«. Petta var eina sundurþykkju- efnið, sem kom fyrir; gerðist það skömmu áður, en ákveðið var að hverfa aftur til Parísar. Peir, Jósef, Lucien og drengirn- ir báðir höfðu ráðgert að ríða upp til fjalla; Napóleon vildi þar á móti vera hcima hjá inóður sinni. En Jósef og Lu- cien vildu gjarna hafa Elise ineð sér og aðra af minni systrunum; en af því að ekki var hægt að ná í íleiri hesta þá urðu þær að gjöra sér asnana að góðu. En Elise lét sér það ekki vel líka. Jer- ome Desmoulins bauðst þá til að láta hana liafa hestinn sinn; en þeir Jósef og Lu- cien vildu ekki heyra á það minst; dreng- irnir áttu að ráða fyrir hestunum; asn- arnir væru of litlir lianda þeim. En El- ise reiddist. Hún var bráðlynd mjög að eðlisfari; dró hún sig út úr og þaut inn í herbergi þeirra systranna. Paðan gat luin séð ofan í húsagarðinn; stóðu þar hestarnir og asnarnir altýgjaðir og biðu þess, að unga fólkið þeysti af stað. Morg- unverðurinn var nú inatreiddur og um liann búið, því að þau ætluðu að snæða hann úti á víðavangi og eftir honum vijr verið að bíða. Elise sat uppi á herberg- inu með þungri þykkju og sárri reiði út af því, hve bræður hennar væru stirð- lyndir við hana. Og þá datt henni ljótt í hug. Ilún læddist ofan og út í garðinn; en ekkert sást hún gera þar annað en að klappa skepnunum og kjassa þær; en hún var ekki sein á sér og nældi stórri hvassri nál í reiðverið á stærri hestinuin, einmitt þeiin hestinum, sem hún vissi að bræður liennar inyndu riða, því að þeir gátu hæglega tvíinent á liest- iinum. Hún gekk svo frá nálinni að hún hlaut innan skamms að stingast í ves- lings hestinn, og þá myndi hann að minsta kosti tryllast svo, að það yrði fararspjöll. Ilún hugsaði víst ekki, að eitthvað annað verra gæti af því lilot- izt. Frh. Heimski Óli. Frh. Pegar Óli átti eftir svo sem 50 faðrna til húsanna stansaði hann alt í einu við læk einn. Flokkur hans var aðeins 31 maður, voru þeir allir orðnir þreyttir og vanmegna af þorsta, og máttu þessvegna til að fá nokkurra minútna hvíld, svo þeir gætu veitt viðnám alt að helmingi fleiri vel vopnuðum hermönnum. Peir blönduðu saman dálitlu af romini og vatni úr læknuin og svöluðu þorsta síu- um en sumir lögðust niður að lionum og svolgruðu vatnið í löngum teygum. Alt i einu kvað við trumbusláttur sunnan megin lljótsins er gaf til kynna að hætta skyldi og reka flóttann, og að þeir, sem komið höfðu norður yfir Bulls Run skildu snúa hið bráðasta aftur. Pegar Óli heyrði þetta þáut liann á stað og inenn hans á eftir, en er hann kom í dyr þær á girðingunni er lá í kringum hænsnagarð- inn, stansaði hann alt í einu og stóð kyr sem marmaralíkneski. »Ilver þremillinn gengur að kaftein- inum«, sagði Tom Bule við bátsmanninn, »hann er þó ekki orðinn aö saltstólpa eins og konan hans Lots«. »Jeg lief' aldrei haft þá ánægju að hafa þekt konu Lots«, svaraöi báts- maðurinn, »en standi hann kyr, þá ger-

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.