Ljósberinn


Ljósberinn - 13.04.1929, Blaðsíða 1

Ljósberinn - 13.04.1929, Blaðsíða 1
Dauði og líf. o Sunnudagaskólinn 14. apríl 1929. Lestu: Mark. 5, 22.—24. og- 35.—43. Lairóu: Sálin. 50, 15. Ákalla mig á degi neýðarinnar; ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig. I>e<r;ii’ Jesús dvaldi hér á jörðunni, sýndi liann fiað oftsinnis að hann hafði undravert vald yflr dauðanum. Eina frá- söguna um það eigum við nú að lesa og íliuga. Jaírus sainkundustjóri átti 12 ára gainla dóttur; hún var svo veik, að henni var ekki hugað líf. Pá tók faðir hennar [tað ráð, sem ávalt hefir reynst bezt.. Ilann kom til Jesú, féll honum til fóta og bað hann að leggja hendur yfir barnið, svo hún yrði heil og héldi lííi. »Og hann fór með honum«, segir í text- anum, varð strax við bæn hans. Það eru huggunarrík og gleðileg orð, sem við skulum festa okkur vel í minni, [iví [iau sýna live góður Jesús er. . Pegar Jaírus var búinn að fela Jesú barnið sitt, [mrfti hann ekkert að ótt- ast, ekki einu sinni [)ó boð kæmu að heiman að alt væri um seinan, barnið væri dáið. »Vertu óhræddur, trúðu að- eins«, sagði Jesús. Pað var skilyrðið sem mikið var undir komið. Grátur og kvein fyltu húsið, [iar sem barnið lá, en pað aftraði Jesú ekki heldur frá því að gera það, sem liann var beðinn um. Iíann hefir líka séð að sá grátur hefir ekki átt sér djúpar rætur. Peir hlógu að honum, pegar liann sagði að stúlkan væri ekki dáin, heldur svæfi. Peir fengu ekki að vera við er hann vakti stúlk- una til lífsíns aftur. Pá skorti trúna, og [iví hlógu peir. Dyrnar milli lífs og dauða, sem eru lokaðar, getur enginn opnað nema liann sem hefir lykla dauðans í liendi sinni, »[iví að eins og faðirinn uppvekur dauða og lífgar [)á, pannig lífgar sonurinn pá, sem hann vill« (Jóh. 5, 21). Dauði og líf eru í hendi hans, einnig dagur og stund. Sá, sem elskar Guð, hugsar oft um alvöru lífsins og komu dauðans. Hann, kappkostar að lifa svo að hann sé ávalt viðbúinn, hvenær sem dauðann ber að. Pannig ættum við öll að vera; en okkur hættir svo rnjög til að hrynda slíkum liugsunuin frá okkur og þess vegna kemur dauðinn svo oft, að óvörum. Jaírus leitaði til frelsarans á siðasta augnabliki og margir liaga sér eins og hann í pví efni.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.