Ljósberinn


Ljósberinn - 20.04.1929, Blaðsíða 1

Ljósberinn - 20.04.1929, Blaðsíða 1
Þolum ilt vegna Jesú. Suniiuilagaskólinn 21. apríl 1921). Lestu: Mark. 6, 14,—29. Lærð.ii; 1. Pet. 3, 14 a. En pótt pér skykluð líöa ilt fyrir réttlætis sakir, pá eruð pér sælir. .Tesús sagði einu sinni við lærisveina sína: »Sælir eru þeir, sem ofsóttir verða fyrir réttlætis sakir, pví að Jrcirra er himnaríki«. Kæru ungu vinir! Pið eruð lærisvein- ar Jesú og þessi orð lians eru töluð til ykkar. Pið eigið að hlýða Jesú, hvað sem aðrir segja, og pá megið [uð eiga pað víst, að ekki verða allir vinir ykkar. Eitt af því, sem Jesús segir, að þið eigið að gera, er það að benda öðrum börnum á það, ef þau eru óhlýðin Jesú. l’að er kallað að segja til syndanna. fíóð börn taka því vel, og 'láta að orð- um ykkar, en slæmu börnin reiðaSt og þá sannast á þeim orðtækið gamla: Sann- leikanum verður hver sárreiðastur. Og af því að þau reiðast, þá reyna þau að gera ykkur eitthvað ilt í orði eða verki. Ykkur kann að þykja þetta sárt, en minnist þá þess, að Jesús er hjá ykkur og segir við ykkur: Ef þiö uin- berið þetta raeð kærleika mín vegna, þá\ eruð þið sæl, því aö ég hefi boðið ykk- ur að aðvara öunur börn við því að ó- hlýðnast mér. — Jóhannes skírari var Guði ldýðinn og iiikaði ekki við að segja sjálfum kon- unginum, Heródesi, að hann hefði brot- ið boðorð Guðs. Vitið þið, hvaða boð- orð það voru sérstaklega. En hann hafði nú annars brotið þau öll, því að Heró- des var ekki góður maður og liafði ekki þrék til að hlýða Guði, og óttast hann. Hann var »slæma barnið«, eins og við segjurn stundum; Jóhannes var sæll, þó að Heródes léti setja liann í fangelsi — hann átti vísan stað á himni hjá Jesú, eins og .lesús segir sjálfur.' Munið nú, kæru ungu vinir, eftir þess- ari sögu. Verið alt af viðbúin að vísa öðrum á rétta leið, ef þið sjáið, að þeir eru að óhlýðnast .Tesú í orði eða verki. Biðjið Jesú, sem alt þoldi vegna föð- ur síns á himnum, að gefa ykkur kær- leika til þess að geta gert hið sama og beðið fyrir þeim, sem reiðast viðvörun ykkar og gera ykkur ilt. Pið eruð að reyna að hjálpa þeim að boði Jesú, en þeir

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.