Ljósberinn


Ljósberinn - 20.04.1929, Síða 4

Ljósberinn - 20.04.1929, Síða 4
124 LJOSBERINN grautínn og smurða brauðið, á eldhús- borðinu, og áður en augað eygði þreif liann diskinn og tæmdi hann í skólp- þrónaj »Parna fer full vel um grautargutlið pitt«, sagði hann hróðugur. »Petta skal ég þó segja henni móðir þinni, lagsinaður! Bað er jafngott að foreldrar þínir fái að vita eitthvað um Axel heyrði ekki niöurlagsorðin hann hentist út og skelti hurðunum hart á eftir sér. Pað hafði ringt mikið um nóttina, veðr- ið var hráslagalegt. Morgunskíman laut ennþá í lægra haldi fyrir rafljósunum, sem vörpuðu birtu á forugar göturnar. Fáir voru á ferli aðrir en þeir, sem voru á leið til skólanna, og Axel slóst brátt í för með félögum sínum. Gerð- ust þeir háværir, vakti Axel Idátur þeirra með skrítlum sínum, er margar snertu Jóa áð einhverju leyti. »Svei mér sem ég held ekki að strák- urinn sé þarna sjálfur rétt á undan okk- ur«, hrópaði einn í hópnum. »Ekki ber á öðru! Hann er löngum auðþektur á peysutötrunum, ha, ha, ha, ha!« Drengirnir ráku upp skellihlátur og tóku sprettinn á eftir Jóa. Iíann gekk i hægðum sínum. Ilugur Iians dvaldi enn á ný við þau efni sem honum þótti mest um vert nú orðið. Hann var að dreyma ljúfa, barnslega drauma Um fund- inn föður, sem tók drengnum sínum opn- um örmum og lét hann njóta föðurlegr- ar ástúðar á yndislegu heimili í alls- nægtum. Framtíðin brosti við honum. Draumur ungrar sálar er svo ósegjan- lega fagur, og Jóa var hugfró í að hugsa sér framtíð sína á þennan hátt. Hann veitti því hlátrasköllum drengjanna enga eftirtekt, þó þeir væru rétt á eftir hon- um, og hann hefði alls ekki skift sér af þeim ef aö Axel liefði ekki ráðist á hann um leið og drengirnir stukku fram hjá honum, og hrint honurn ofan í óhreina götuna, bækur hans og skólaáhöld hrutu út úr töskugarminum og lágu á víð og dreyf í bleytunni. Sem allra snöggvast leit út fyrir að Jói ætti örðugt með að átta sig á hinum skyndilegu umskiftum, en bráðlega skildist honum það, að draumalandið hans var með öllu horfið, og Jói var þá ekki seinn á sér. að- standa upp, en nú var það ekki viðkvæmur blær sem lék um sál hans, heldur gallhörð hefndarþörf, sem hafði hann á valdi sínu. Axel ætlaði að láta fæturnar forða sér, en varð of seinn, Jói þreif til hans og skelti honum endi- löngum á götuna, og hnefahöggin dundu á honuin jafnt og þétt, án þess að gætt væri að hvar þau lentu. Axel æpti á hjálp, en félagar lians þorðu hvergi að koma nærri, þar að auki var komið að skólatíma, og kusu þeir þann kostinn vænstan að hraða sér í skólann. Loks komst v\.xel á fætur og var þá ófrýnn með alblóðugt andlit eftir blóðnas- ir ogsmáskeinu, er hnefi Jóa var valdur að. Axel titraði af reiði. Honum varð orðfall, en augnaráðið bar vott um hugarþel lians. Jói glotti; hann týndi bækurnar sínar upp af götunni, og reyndi að þerra af þeim bleytuna með harla óhreinum vasa- klút. — »Iieyndu, ef þú þorir, að ráð- ast á mig aftur«, sagði liann og steytti hnefann til Axels, sem var að þerra blóðið af andlitinu á sér. »Ég skal segja skólastjóranuin það —« sagði hann snöktandi. «Pú skalt verða laminu — þú skalt verða rekinn — úr skóla — ég skal láta — setja — þig í — tugthúsið — —«. Jói leit til lians glottandi. »lieldurðu, vesalmennið þitt, að ég sé hræddur við hótanir þínar — ? Ó, nei! En varaðu þig! Ég get oröið býsna þunghentur, þegar mér þykir fyrir«,

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.