Ljósberinn - 20.04.1929, Blaðsíða 4
124
LJOSBERINN
grautínn og smurða brauðið, á eldhús-
borðinu, og áður en augað eygði þreif
liann diskinn og tæmdi hann í skólp-
þrónaj
»Parna fer full vel um grautargutlið
pitt«, sagði hann hróðugur.
»Petta skal ég þó segja henni móðir
þinni, lagsinaður! Bað er jafngott að
foreldrar þínir fái að vita eitthvað um
Axel heyrði ekki niöurlagsorðin hann
hentist út og skelti hurðunum hart á
eftir sér.
Pað hafði ringt mikið um nóttina, veðr-
ið var hráslagalegt. Morgunskíman laut
ennþá í lægra haldi fyrir rafljósunum,
sem vörpuðu birtu á forugar göturnar.
Fáir voru á ferli aðrir en þeir, sem
voru á leið til skólanna, og Axel slóst
brátt í för með félögum sínum. Gerð-
ust þeir háværir, vakti Axel Idátur þeirra
með skrítlum sínum, er margar snertu
Jóa áð einhverju leyti.
»Svei mér sem ég held ekki að strák-
urinn sé þarna sjálfur rétt á undan okk-
ur«, hrópaði einn í hópnum. »Ekki ber
á öðru! Hann er löngum auðþektur á
peysutötrunum, ha, ha, ha, ha!«
Drengirnir ráku upp skellihlátur og
tóku sprettinn á eftir Jóa. Iíann gekk
i hægðum sínum. Ilugur Iians dvaldi
enn á ný við þau efni sem honum þótti
mest um vert nú orðið. Hann var að
dreyma ljúfa, barnslega drauma Um fund-
inn föður, sem tók drengnum sínum opn-
um örmum og lét hann njóta föðurlegr-
ar ástúðar á yndislegu heimili í alls-
nægtum. Framtíðin brosti við honum.
Draumur ungrar sálar er svo ósegjan-
lega fagur, og Jóa var hugfró í að hugsa
sér framtíð sína á þennan hátt. Hann
veitti því hlátrasköllum drengjanna enga
eftirtekt, þó þeir væru rétt á eftir hon-
um, og hann hefði alls ekki skift sér af
þeim ef aö Axel liefði ekki ráðist á hann
um leið og drengirnir stukku fram hjá
honum, og hrint honurn ofan í óhreina
götuna, bækur hans og skólaáhöld hrutu
út úr töskugarminum og lágu á víð og
dreyf í bleytunni. Sem allra snöggvast
leit út fyrir að Jói ætti örðugt með að
átta sig á hinum skyndilegu umskiftum,
en bráðlega skildist honum það, að
draumalandið hans var með öllu horfið,
og Jói var þá ekki seinn á sér.
að- standa upp, en nú var það ekki
viðkvæmur blær sem lék um sál hans,
heldur gallhörð hefndarþörf, sem hafði
hann á valdi sínu. Axel ætlaði að láta
fæturnar forða sér, en varð of seinn,
Jói þreif til hans og skelti honum endi-
löngum á götuna, og hnefahöggin dundu
á honuin jafnt og þétt, án þess að gætt
væri að hvar þau lentu. Axel æpti á
hjálp, en félagar lians þorðu hvergi að
koma nærri, þar að auki var komið að
skólatíma, og kusu þeir þann kostinn
vænstan að hraða sér í skólann.
Loks komst v\.xel á fætur og var þá
ófrýnn með alblóðugt andlit eftir blóðnas-
ir ogsmáskeinu, er hnefi Jóa var valdur að.
Axel titraði af reiði. Honum varð orðfall,
en augnaráðið bar vott um hugarþel lians.
Jói glotti; hann týndi bækurnar sínar
upp af götunni, og reyndi að þerra af
þeim bleytuna með harla óhreinum vasa-
klút. — »Iieyndu, ef þú þorir, að ráð-
ast á mig aftur«, sagði liann og steytti
hnefann til Axels, sem var að þerra
blóðið af andlitinu á sér.
»Ég skal segja skólastjóranuin það —«
sagði hann snöktandi. «Pú skalt verða
laminu — þú skalt verða rekinn — úr
skóla — ég skal láta — setja — þig í
— tugthúsið — —«.
Jói leit til lians glottandi. »lieldurðu,
vesalmennið þitt, að ég sé hræddur við
hótanir þínar — ? Ó, nei! En varaðu
þig! Ég get oröið býsna þunghentur,
þegar mér þykir fyrir«,