Ljósberinn


Ljósberinn - 01.06.1929, Blaðsíða 2

Ljósberinn - 01.06.1929, Blaðsíða 2
1G2 LJÖSBERINN sem ungur óx að vizku með aldri í Nazaret.« -----•-sest ^rœ'hnrnir tfiit öíxtltrúnu XáriísíiáHxjr (3(itn2i fgrtr *ljc>»hrrauu) Frh. IV. ÓIi litli. Hann Öli litli var smár vexti, Ijósu hárlokkarnir huldu enni hans og gagn- augu að mestu, og drengirnir sögðu að hann væri líkastur stelpu. En mamma hans týmdi ekki að skerða gulllokka safnið lians. Augu hans voru blá og fög- ur eins og kvöldstjarnan jiegar hún blik- ar sem allra skærast og drengirnir siigðu að Öli hefði ungbarns augu. Óli tók sér })að ekki nærri. lionum sárnaði stelpu- heitið langtum meira, og hann prá bað hana mömmu sína um að snoðklippa sig. Um síðir lét hún undan honum og [tá sögðu drengirnir: >Pú ert auðvitað dálítið skárri en alt- af ortu samt stelpulegur.« — Óli var einkabarn foreldra sinna, og Iiann var þeirn harla kær, það var vakað yfir honum með alúð og nær- gætni, sein æstríkir foreldrar eiga gnægo af. I'au gættu lians vandlega, svo að ekki ])jáði hann hiti eða kuldi, hungur eða þorsti; öllum óþægindum var bægt burt frá honum, sérhverri hættu haldið utan dyra, og j)ó hafði hætta laumast inn fil.hans; ískyggilegur óvinur lífs- gleðinnar hafði læðst inn á heimilið og læst köldum klóm utan um litla dreng- inn, — veikindi höfðu heimsókt Óla litla. Hann vciktist af lungnabólgu er að vísu batnaði, og Oli litli var talinn heill heilsu, en blómroðinn kom ekki aft- ur í kinnarnar hans og læknirinn sagði að liann þyrfti mjög nákvæma aðhjúk- run ef að hann ætti að vcrða hraustur drengur. Óli var eptirlætisbarn. Bros bans var gleðin hennar mömmu hans; og aðal á- nægja föður hans var að sitja undir litla drengnum sínum, að loknu starfi; liann hallaði glókollinum upp að brjóst- inu hans pabba með' öruggu trúnaðar- trausti. Óli litli átti gott og laglegt heimili. Sólin skcin inn í stofurnar og blómin í gluggunum önduðu frá sér ilmandi friði, sem einkendi snotra heimilið hans, og kanari fuglinn, sem söng í gylta búrinu sínu, túlkaði á sinn hátt þá unaðsemd, sem sól, blóm og góðir vinir veita hvor- ir öðruin. Begar sólin hækkaði á lopti, sagði læknirinn að Öli ætti að vera sem allra mest úti. Óli þóttist svo sem fær í ílestan sjó og reyndi til að láta sér standa á sama um þó að strákarnir segðu að hann væri lítill og stelpulcgur. En með sjálf- um sjer öfundaði hann stóru drengina, sem voru stœrkir og fljótir að hlaupa, og gátu farið í knattspyrnu. Ilann sat sig sjaldan úr færi að koma á æfingar og leiki drengja, sem liigðu stund á þá íþrótt, vVxel var þar fremstur í flokki, og þar af leiðandi í miklum metum hjá Óla litla. Hann hætti sjálfum sér aldrei út á leikvöllinn, þó hann dauðlangaði, en hann var sannarlega hrifinn og athug- ull áhorfandi, sem kunni að klappa lof í lófa og æpa sigurvegurunum fil heið-

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.