Ljósberinn


Ljósberinn - 10.08.1929, Blaðsíða 1

Ljósberinn - 10.08.1929, Blaðsíða 1
/ ' • . '+&SÚ& ttag&i: JZeyfib b&vitiu\um . kotna til mín qg bannít þeírn þapeklti, þtn a<f slíkum l/ejjvír Qubs vtki til. IX. árg. Reykjavík, 10. ágúst 1929. 30. tbl. Yerið óhrædd! Smakkið og sjáið, hve Drottinn er góður; sæll er sá maður, sem leitar hælis hjá honum. Pað var Davíð hinn ungi konungur Israelsraanna. Hafið þið ekki heyrt eða lesið, livenig Guð hjálpaði honura, af pví að Davíð treysti honum og engum öðrum. En Davíð lét sér ekki nægja að heyra, hvað Guð hefði gert fyrir aðra, heldur leitaði hælis hjá Drotni og reyndi pað sjálfur, hvað hann var góður. Einu sinni vildi barnakennari gera börnum sínum ápreifanlega skilj"anlegt, hvað fólgið væri í pessum ofangreindu orðum Davíðs. Hann helti pá dálitlu af hvítu dufti á undirskál og lét hana svo berast milli barnanna til pess að láta pau smakka á pví og segja, hvað pað væri. Fyrsti drengurinn leit á pað, og pótt- ist óðara sjá, að pað væri salt, en ekki smakkaði hann á pví. Ilið sama héldu öll hin börnin, pangað til röðin kom að síðasta og yngsta drengnum í bekknum. Ilann lét sér ekki nægja að líta á duft- ið, heldur vildi hann láta álit sitt í ljósi af eigin reynd, tók pví lítið eitt af duft- inu milli fingra sér og smakkaði á pví. lJá sagði hann: ^Petta er sykur!« Pessi drengur fór skynsamlega að ráði sínu, pví að pó greindur geti stundum nærri, pá veit pó reyudur betur. Kæru börn! Farið eins að í andlegum skilningi. Látið ykkur ekki nægja að heyra aðra segja, hvað Drottinn sé, held- ur reynið pið hann sjálf. Leitið hælis hjá honum, með pví að biðja hann með barnslegri trú með ykkar eigin orðum og pá mun hann gefa ykkur vegna Jesú, pað sem pið biðjið hann og pá eruð pið sjálf' búin að reyna, hvað Guð er góður. Ef aðrir segja, að hann sé pað ekki, og pað sé ekki til neins að biðja hann nokk- urs, pá vitið pið af eigin reynd, að pað er ekki satt. Og pá eruð pið sælustu börn í heimi. Pá líðið pið engan skort, eins og Davíð segir, pá farið pið einskis góðs á mis. Ó, livað þú, Guð, ert góður, pín gæzka og iniskun aldrei dvín, frá lífi minnar móður var mér æ nálæg aðstoð pín. Lærið petta vers.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.