Ljósberinn


Ljósberinn - 19.10.1929, Síða 1

Ljósberinn - 19.10.1929, Síða 1
Yerið óhrædd, börn. Sunnudagaskólinn 20. okt,. 1929. Lestu : 4. Mós. 13. 31,—14,9, Lærðu: Lúk. 12, 32. Vertu ekki hrædd, litla hjörð, |)ví að föður yðar hefir þókn- ast að gefa yður ríkið. lTræddu börnin, sem hér er verió að segja frá, voru kölluð ísraels börn, pví að einn af forfeðrum peirra hét ísrael. Nú voru pau á leiðinni heim í landið sitt, sem Guð sjálfur hafði gefið forfeðr- um peirra. En hvað pau hlökkuðu til að koma heim, þó að aldrei hefðu þau sjálf séð þetta góða land, því að gott hlaut það að vera, fyrst það var af Guði gefið. En samt sem áður kom þeim saman um að senda menn á undan til að kanna landið og sjá þjóðina, sem þar ætti nú heima. Sendimennirnir komu aftur og sögðu að landið væri gott, en þjóðin, sem byggi þar væri hræðileg — tómir risar. Pá urðu börnin dauðhrædd og vildu fyrir hvern mun snúa aftur, því að þau trúðu því, sem sendimennirnir sögðu af risunum. Pau vildu láta landið — gjöf Guðs, oiga sig með öllum sínum gæðum. En til allrar hamingju voru tveir sendimenn alveg ósmeykir við þessa risa, því að þeir sögðu: Guð vill gefa ykkur landið og hann er með ykkur og berst fyrir ykkur og hvað geta risarnir þá? Og svo fór, að börnin trúðu þessum orðum og héldu áfram ferðinni og unnu landið sitt aftur, af því að Guð var með þeim. — Kæru börn! Þessi saga og sagan ykk- ar eru fjarska líkar. Pið eigið föðurland á himni. Og til hvers gangið þið í sunnudaga- skólann? Auðvitað til þess að heyra eitthvað um himneska föðurlandið og hverjir þar eigi heiina. Ég vona að kennararnir ykkar fari ekki að eins og sendiinennirnir, sein eögðu frá risunum og töldu ómögulegt að vinna landið. Nei, þeir segja ykkur áreiðanlega eins og hinir sendimennirnir: »IJið getið unn- ið landið, því að Jesús er með ykkur. Guð gefur ykkur landið. Þar á hann sjálfur heima, þar er Jesús, bezti vin- urinn ykkar. A^erið því ólirædd. lJað sem faðirinn himneski og frelsarinn góði vilja gefa ykkur, getur enginn risi frá ykkur tekið né meinað ykkur að fá, ef þið viljið þiggja það.

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.