Ljósberinn - 18.02.1933, Síða 1
Mfaiiv Mstiip íorlátssra
var fæddur að Staðarbakka í Miðfirði
árið 1542, en dó að Hólum, 20. júlí 1627,
°S hafði þá setið 56 ár á »Norðurlands
hiskupsstóli«, og eru. slíks engin dæmi
á Islandi.
Faðir hans var Þorlákur prestur
Hallgrímsson að Staðarbakka, ár-
vakur og ötull embættismaður,
en móðir hans var Helga Jóns-
dóttir Sigmundssnar, hins ágæt-
asta héraðshöfðingja á sinni tíð.
Guðbrandur gekk í latínuskól-
ann á Hólum, þá nýstofnaðan,
er hann var 11 ára, og- lauk þar
námi á 6 vetrum, varð síðan
kennari við skólann 2 vetur, en
sigldi síðan til Kaupmannahafn-
arháskóla og hlaut biskupsvígslu
1571, ekki sízt fyrir tilstyrk Páls
Matthíassonar, vinar síns og
ktarmanns á skólaárunum
ytra.
Tók hann þá brátt til fram-
kvæmdanna: Bætti kjör presta
sinna og studdi að andlegum
framförum þeirra.
Hann keypti sér nýja prent-
smiðju og naut þar að Páls Sjá-
landsbiskups vinar síns. Kom
Páll biskup Jóni Matthíassyni, prent-
araefni Guðbrands, á framfæri, svo
hann gat numið prentlistina til hlítar.
Auk þess sendi Páll biskup Guðbrandi
letur, svertu og pappír og annað, sem
til prentunar þurfti. Ekkert sparaði
Guðbrandur biskup til þess, að alt, sem
hann lét preinta, væri sem bezt og