Ljósberinn - 10.06.1933, Side 1
' ' " ' ....... I.." ■ r- - , .. 'l |
"Z3fe'sú& .sqg&i
/íorna til mín qi
•»í (i<f slítuim heurír
'artm
XIII. árg.
Reykjavík, 10. júní 1933.
20. tbl.
Finnur Jónsson.
(1704—1789)
Hann var sonur Jóns prófasts Halí-
dórssonar hins fróða í Hítardal. Heimili
föður hans var réttnefndur kennara-
skóli handa ungum mönnum og þar nam
Finnur sín fyrstu fræði. Gekk ! Skál-
holtsskóla (1721) og var síðan tvo vet-
ur að námi hjá föður sínurn, áður en
hann sigldi til háskólans (1725). Þar
tók hann embættispróf í guðfræði með
bezta vitnisburði (1728).
Þegar heim kom, tók hann við staðn-
um Reykholti að ráði föður síns; og
varð brátt vinsæll af sóknarbörnum sín-
um; var hann þegar kosinn til prófasts
eftir sr. Hannes Halldórsson, föðurbróð-
ur sinn. Konu átti hann, sér samhenta,
Guðríði Gísladóttur, af ætt Guðbrands
biskups.
Hann varð biskup í Skálholti (1754).
Harboe biskup, er hingað hafði verið
sendur (1745) til að líta eftir biskups-
stólnum og skólunum, vígði hann.
Finnur biskup var einkar ötull og'
samvizkusamur í starfi og fór að tillög-
Finnur Jónsson, biskup.
um Harboes biskups, vinar síns, um
eflingu kirkjunnar og alla kristindóms-
fræðslu.
Kjörorð Finns biskups voru þessi ritn-
ingarorð: »Hinn réttláti mun lifa fyrir
trú« (Hebr. 10, 38.).
Frægastur er Finnur biskup af hinni
yfirgripsmiklu kirkjusögu sinni, sem
hann ritaði á latínu; má hún miklu
fremur heita Islandssaga, því að hann
ségir engu síður frá landsstjórn, búskap
og bókmentum þjóðarinnar frá upphafi,
en frá íslenzku kirkjunni.