Ljósberinn - 17.06.1933, Side 1
--------------- •■■■
Jfvsua attgöi.- .Lr/rt/f.tc ifjvtuturn
a% /totna tíl mrn og lrámjið þeírn þ(i%?
■ • r;->,,., ■ -• H
XIII. árg.
Reykjavík, 17. júní 1933.
21. tbl.
Hannes Finnsson.
(1739 1796)
Hann var sonur Finns biskups jóns-
sonar og er fæddur í Reykholti. Hann
fór í Skálholtsskóla (1753) og sigldi að
loknu námi þar til Hafnar og tók em-
bættispróf í guðfræði 1758.
Eftir það tók hann að leggja stund
á íslenzka fornfræði og fékk lof fyrir
ritgerðir sínar í þeim fræðigreinum,
bæði innan lands og utan.
Hann var einkar þjóðrækinn og beitti
hylii sinni hjá konungi og stjórn til að
efla hag landa sinna.
Pað var hann, sem setti smiðshögg-
ið á kirkjusögu föður síns, á Hafnar-
árum isínum.
Þegar hann kemur út, lætur hann sér
annast um það tvent, að safna til sögu
landsins, og fræða alþýðu um sérhvaó
það, sem heyrði til almennrar mentun-
ar. Gott dæmi hins síðarnefnda eru
»Kvöldvökur« hans, sem eru öllum a’i-
þýðubókum fremri, langt fram á 19.
öld. Hann stofnaði fyrstur manna bóka-
safn handa almenningi eða lestrarfélag,
og stóð fyrir því.
Hannes biskup dó í -fullu fjöri, 4. ág.
1796; hann andaðist frá embættisverki.
Það þótti þá mörgum íslenzkum embætt-
liannes Finnsson.
ismönnum fegurstur dauðdagi. Dauðinn
einn gat leyst þá frá trúnaðarskyldunni
við Guð og föðurlandið.
Hann var síðasti biskup í Skálholti.
Biskupsstóllinn hafði þá staðið þar frá
því, er fsleifur biskup stofnaði hann
1056.
Rættist þá spá Sveins biskups Pét-
urssonar hins spaka í Skálholti (1466
—1476):
»Eins og Skálholt hefir dýrðlega Raf-
ist og náð vexti og viðgangi, svo mun
það á sínum tíma sökkva í vesaldóm.«