Ljósberinn


Ljósberinn - 08.07.1933, Blaðsíða 1

Ljósberinn - 08.07.1933, Blaðsíða 1
'—'— "'l.•;..... '.""M'K-- ■ . ... > .. . ZtKgp* ÍZfesús sag&i: JZeyfib %&rtiunmn ’ ^s ttÍ kotna til mín eg bamríS þeim þa $ ýkki, 't>í u% s/íicuni heuvír Qnís ríkí iil ■ . , XIII. árg. Reykjavík, 8. júlí 1933. 24. tbl. Boji Benediktsson á Stadarfelli. (F. 1771, d. 1849). Forfeður Bog'a Benediktssonar voru harðfengnir og' atorkusamir bændur, miklir fyrir sér, höfðingjar í lund og fé- sælir. Móðir hans var systurdóttir Bjarna Pálssonar, fyrsta landlæknis á Islandi (d. 1779). Benedikt faðir hans var enginn eftir- bátur forfeðra sinna og fésæll og fram- takssamur. Bogi gekk í Hólaskóla (1790) að ráði Hildar móður sinnar, því móðurfrænd- ur hans tveir voru þá kennarar við skól- ann. Þaðan útskrifaðist hann eftir 5 vetur (1795) og hefði líklega orðið snjallasti kennimaður. En embættis- brautin átti ekki fyrir honum að liggja, heldur kaupmenska fyrst framan af, en síðan (1827) settist hann að föðurleifð sinni, Staðarfelli. Hann dó að Staðarfelli 25. marz 1849, á 78 ári. Bogi var fríður sínum og karlmann- legur. Fór snemma að safna íslenzkum sögubókum og öðrum fræðibókum og átti allgott handritasafn. Hann gaf sig snemma við íslenzkri ættfræði og sagn- fræði. En aðalrit sitt »Sýslumannaæf- irnar« ritaði hann eftir það er hann var algerlega seztur um kyrt að Staðarfelli. Það er merkasta mannsagna og ætt- fræðirit í ísl. bókmentum. Þykir ve; hafa til tekist, að hann komst út úr verzlunarbraskinu og gafst tími til aö vinna í kyrð og næði að þessu þarfa og þjóðnýta verki. Ekki þurfti hann neitt að skifta sér af bústjórn utan húss né innan. Kona hans Jarþrúður annaðist það alt með mesta skörungsskap. Hún á því mikilvægan þátt í því, að »Sýslu- mannaæfirnar« hans verða ævarandi minningarmark um elju hans og vand- virkni. —

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.