Ljósberinn


Ljósberinn - 21.10.1933, Síða 1

Ljósberinn - 21.10.1933, Síða 1
 ■■■■■■a — — ZZe’sus saaöi: Áret/fi'c b&riuin konia íil mín cg batrníð þeirrt þrtb(> a<f s/íUam heurír Quðs ríkí.tít-. - ■ 'i tn Reykjavík, 21. okt. 1933. XIII. árg. 38. tbl. Möglun gegn Guði. (Sunnudagaskólinn 22. okt. 1933.) Texti: Mós. 13, 31.—33. og 14, 1.—9. Minnisvers: Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því föður yðar hefir þóknast að gefa yður rikið. — Lúk. 12, 32. Guð hafði á dásamlegan hátt leitt Is- raelsmenn út úr Egyptalandi. Þeir höfðu reynt hjálp Drottins og þreifað á máttarverkum hans. En þó örvæntu þeir og gleymdu jafnvel Guði, strax þegar eitthvað blés á móti. 1 dag lesum við um það, þegar Móse sendi 12 menn inn í Kanaansland, til þess að sjá hvernig þar væri umhorfs. Þegar sendimennirnir komu aftur, þá löstuðu þeir landið, — þeim hafði fall- ist hugur, er þeir sáu hinar víggirtu borgir og risavaxna fólkið, sem þar bjó. Þeir treystu ekki Guði. Aðeins tveir. Jósúa og Kabel, sögðu hið sanna frá gæðum landsins, og þeir voru ekkert hræddir við stóru mennina og víggirtu borgirnar, og þeir hvöttu Israelslýð til þess að halda áfram í Drottins nafni. Þeir treystu Guði og voru öruggir um, að hann mundi sjá þeim borgið. En Is- raelsmenn trúðu þeim ekki og margir þeirra vildu hverfa aftur til kjötkatl- anna í Egyptalandi. Móses átti í miklu stríði með þá, því þeir vildu fará að sínum ráðum og treysta á mátt sinn og megin. Og svo hegndi Guð þeim með því, að láta þá hrekjast í eyðimörkinni í fjörutíu ár. En þeir Jósúa og Kabel, sem höfðu treyst Guði, fengu að koma inn í landið. Og Móse fékk að sjá inn í það áður en hann dó. Kæru ungu vinir. Af þessari sögu eig- um við að læra það, að Drottinn vill leiða okkur. Jesús vill halda í hönd okk- ar og hjálpa okkur í gegnum allar freist- ingar, sem okkur mæta, hann vill leiða okkur í gegnum allar þrautir og raun- ir, sem mæta okkur á lífsleiðinni, og að síðustu vill hann gefa okkur hið fyr- irheitna land heima hjá sér á himnum. En ef við gleymum honum og ætlum að fara að treysta á okkur sjálf, þá fer illa. Við getum aldrei neitt án Guðs. Án hans villumst við og förumst í eyði- mörk þessa syndum spilta jarðlífs. »Vertu ekki hrædd, litla hjörð.« Nei, við þurfum aldrei að vera hrædd, þó öldur andstreymisins rísi hátt, því þær hjaðna brátt, fyrir einu orði Drottins. Guð gefi, að við byggjum hús okkar á því bjargi, sem heitir JESOS, þá erfum við að enduðu æfiskeiði vo^u hér hið fyrirheitna himneska föðurland og fá- um um alla eilífð að vera með Jesú. ----------------

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.