Ljósberinn - 01.03.1941, Side 9

Ljósberinn - 01.03.1941, Side 9
LJÓSBERINN 29 enginn vissi hvar var. Vondi brúðirinn sagði nú konungi, að Jósep vissi um heim- kynni prinsessunnar og stæði í sambandi við hana. En er konungur heyrði það, ætl- aði hann af göflunum að ganga, og sendi eftir Jósep, og- skipaði honum að fara und- ir eins af stað og sækja prinsessuna Bella- Flor, og yrði hann hengdur, ef það brygðist. Hinn vesæli ógæfumaður íór nú út í hesthús, til að velja sér fararskjóta og leggja svo á stað út í bláinn, án þess að hafa hugmynd um hvert hann ætti að stefna til að finna Bella-Flor. Þá rak hann augun í afgamlan, hvítan húðarjálk, sem aagði: »Taktu mig og vertu ekki áhyggjufull- ur«. Það undraði Jósep, að heyra hest ávarpa sig; en hann fór á bak honum og reið á stað, og hafði með sér þrjá brauðhleifa, sem hesturinn hafði s,agt honum að ná í. Eftir að þeir höfðu farið langa lengi komu, þeir að mauraþúfu. Hesturinn sagöi: »Myldu niður brauðhleifana þrjá, svo að maurarnir geti etið brauðio«. »Hvers vegna?« spurði Jósep. »Við þurf- um sjálfir á þeim að halda«. »Kastaðu þeim fyrir maurana«, lieimt- aði hesturinn. »Það borgar sig aJlt af að vera góður«. Þeir héldu, nú áfram ferð sinni og lvomu þar, sem örn var fastur í veiðimanns giildru. »Farðu af ba,ki«, sagði hesturinn, »höggðu á möskvana og losaóu vesalmgs fuglinn«. »En tefjumst við ekki við það að stanza?« spurði Jósep. »Láttu það ekkert á þig fá. Gerðu eins og ég býð, og þreytstu aldrei á því að gera gott«. Þeir héldu nú áfram, og komu, þegar stundir liðu, að á, þar sem þeir rákust á silung, sem hafði kastast upp á land, og koimst ekki aftur út í strauminn, hvernig sem hann brauzt um. »Farðu af baki«, sagði hvíti hesturinn við Jósep. »Taktu silunginn og kastaðu hon- um aftur út í vatnið«. »,Við megum engan tíma missa«, bar Jósep við. »Það er allt af tími til að gera go.tt!« svaraði hvíti hesturinn. »Þreytstu aldrei á að gera gott!« Skömmu síðar komu þeir að kastala, sem falinn var í myrkum skógi, og kornu þar auga á prinsessuna Bella-Flor, sem var að fóðra kjúklingana sína á korni. »Bíddu«, skipaði hvíti hesturinn Jósep. »Nú ætla ég að stökkva c,g dansa á tölt- inu og mun Bella-Flor hafa gaman af því. Þá mun hún láta það uppi, að hehni þætti gaman að ríða mér dálítinn spöl, og skalt þú bjóða henni það; þá mun ég fara að prjóna og' ausa. Hún verður hrædd og' skaltu þá segja henni, að þetta komi af því, að ég sé óvanur kvenfólki, og að ef að þú farir á bak á mig, muni ég verða rólegur. Þá ferð þú á bak á mig og ég hendist beint til hallar konungs«. Allt fór nú þetta eins, og ráð var fyrir gert, og það var fyrst þegar hesturinn tók á rás að Bclla-Flor áttaði sig á því, að hún hafði fallið í gildru. Þá sleppti hún korninu, sem hún hélt á í hendinni, og' bað reiðfélaga sinn að stanza, og vera svo. g'óðan að taka það upp fyrir sig'. »Þar sem vio komum«, fullvissaði Jósep hana, »er nóg' af korni«. Þegar þau svo koanu að tré einu, kast- aði hún vasaklútnum sínum upp í loftið, og festist hann í trjátoppinum. Bað hún Jósep að fara af ba,ki og klifra upp í tréð og ná í klútinn: »Það er nóg af vasaklútum þar, sem við koimum«, svaraði Jósep. Þá fóru þau yfir á, en hún lét hring falla í ána og bað Jósep að fara af baki og' finna hringinn. En hann svaraði því til, að það væru margir þar, sem þau kæmu. Að síðustu komu þau til hallar konungs, og varð hann harla glaður við að sjá sína kæru Bella-Flor. En hún lokaði sig inni

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.