Ljósberinn - 01.03.1941, Page 26

Ljósberinn - 01.03.1941, Page 26
46 LJÓSBERINN um göturnar í stelpufötum — nei, þakka þér nú fyrir! Þau komu sér því saman um að setjast !út í garðinn og lesa fram að hádeginu. Stígur og Elsa voru algerlega sammála um bækur ... og undanfarið höfðu þau einmitt verið að lesa »Valsvæng« saman, og Stígur hafði verið að leita að honum allan morguninn. Hann þóttist viss um, að Els-a hefði stungið bókinni í ferðatösku sína til þess að hafa eitthvað að skemmta sér við ... en hann var göfuglyndur og fyrirgaf henni þetta, er honum varð hugs- að til þess, að hún hefði nú eiginlega bc.r- ið járn fyrir hann. »Lítt’ á hérna er falleg bók og ágætlega við smátelpuhæfi«, sagði Margrét og lagði litla skrautbundna bók í fangið á Stíg. »Hvaða herjans bull er þetta?« sagði hann bálvondur, er hann las nafnið á bók- inni »Litla lambid. Saga handa smátelp- um, eftir Lísu frænku«. »Þetta er ágæt bók«, sagði Margrét ertn- islega, en varð í sama vetfangi að bera. báðar hendur fyrir höfuð sér, því að Stíg- ur henti bókinni í h,ana, gaf henni langt nef og þaut burt, svoi að kjóllinn þyrlaðist um fæturnar á honum. Systir hans. hljóp á eftir honum, en náði hoinum ekki fyrr en í útidyrunum, en þar kom María blaðskellandi á móti þeim. »En það útlit á ykkur«, sagði hún, »far- ið þið nú inn og greiðið ykkur og dubbið ykkur dálítið upp. Frænka ykkar, etats- ráðsfrúin, er komin, hún er inni í dagstof- unni hjá ungfrúnni«. »Gréta«, sagði Stígur, »hvað í ósköpun- um vill Júlla frænka hingað? Hefirðu nokkra hugmynd um þaðl?« »Ekki minnstu vitund«, svaraði Margrét, »en beinasta léiðin til að komast að því er að fara inn í sítofu, ko.mdu; nú!« »Þetta lízt mér ekki á«, sagði Stígur og labbaði inn á eftir systur sinni. Þau hittu báðar frænkurnar niðursokkn- ir í trúnaðarmál. Stígur gerði glæsilega hnjábeygingu, sem hann hafði æft sig í, meðan Margrét var að greiða honum, cg hafði það ekki ibætt úr hárgreiðslunni. Júlla frænka, etatsfrú Gregers var bá og fönguleg kona, búin samkvæmt nýj- ustu tízku, fjörleg og mælsk.. Hún faðmaði að sér báolar litlu frænk- ur pínar, hló að stuttu, lckkunum á Elsu, togaði í þá og sagði, að þeir færu henni ljómandi vel. Því næst fór hún og Emma frænka að spjalla um kjóla, en allt í einu sagði Júlla frænka: »En heyrðu, Emma, þú ert ekki búin að segja systrunum, hvers vegna ég sé komin«. ».Nei, það seg'irðu. alveg satt, góða Júlía! Hugsið ykkur bara, Júlía frænka ætlar að taka ykkur með sér í eftirmiðtíag o.g hafa ykkur hjá sér í heila viku og sýna ykkur alla dýrð börgarinnar. Það er þó leiðinlegt, að| Gréta skuli ekki geta farið líka«. Stígur og- Gréta litu skelkuð hvort á ann- að. Lcksins sagði Gréta: »Þakka þér kær- lega fyrir, Júlía frænka, það var fallega gert af þér að hugsa til okkar, en eins og' Emma frænka hefir víst sagt þér, þá á ég von á skólasystur minni, sem á að vera sumargestur okkar«. »Já, en það var annars leiðinlegt. Ég verð þá að láta mér nægja Elsu. Svoi send- ir Emma frænka Stíg til okkar, þegar hann kemur heim á morgun með bróöur mínum«. Stígur mændi bænaraugum á systur sína. »Já, en Júlía frænka«, sagði Margrét, »gæti ekki Stíg... Elsa beðið, þangað til Stígur kemur á morgun, það væri betra, að þau yrðú samferða«.. »Nei, góðla mín, nú hafa þau Páll og Dóra hjakkað svoi til, að þá kæmir, sem ert jafnaldri þeirra, og svo ætti ég að kotma, tómhent heim aftur •— nei, þá verð ég nú sannarlega að fá Elsu með mér. Frænka þín hefir lofað að senda Stíg á eftir hinn daginn, o.g sívo stór piltur get- ur eflaust farið einsamalk. »Ég heldj nú samt, að það væri bezt, að ég biði eftir Stíg«, sagði umskiftings-

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.