Ljósberinn - 01.08.1941, Page 11
LJÖSBERINN
731
Bænimar
hans föður hans umluktu hann.
Höfundur hinnar svo nefndu heittrúar-
stefnu, Filippus Jakob Spener, átti slæm-
an son og óhlýðinn. Refsingar komu að engu
haldi. Áminningar og ástúðleg framkoma,
dugði ekki að heldur. Og endirinn varð sá,
að faðir hans varð að láta drenginn fára
sinna ferða. Hann gat ekkert gert fyrir
hann, nema beðið fyrir honum, og það gerði
hann iðulega, en allt virtist koma fyrir ekki.
En þá varð drengurinn sn.ögglega dauð-
sjúkur; bað þá faðir hans enn ákafar fyr-
ir honum og loks svaraði svo Drottinn hin-
um mörgu bænum hans.
Einu sinni reis hinn sjúk’i' drengur upp
í rúminu sínu og mælti:
»Bæriir föður míns umlykja mig, eins
og háfjöll«. Og að svo mæltu hneig hann
aftur niður í rúmið, því að hitinn í hon-
um var enn á háu stigi.
En upp frá þeirri stundu var bæði magn
sjúkleikans og vald syndarinnar brotið í
honum.
og sögðum svo að segja báðir í sömu and-
ránni:
»Við hefðum ekki átt að gera þetta!«
En svo gleymdust nú þær áhyggjur í
eyipinn, því að við sáum fil þeirra Hnalls
og Þytar, skammt frá okkur og flýttum
okkur að handsama þá. Og um leið og við
vorum komnir á bak, vorum við komnir i
sólskinsskap, enda var nú orðið glatt í
kringum okkur: náttúran öll eitt sólskins-
bros og klárarní'r, — okkar góðu kunn-
ingjar, — leikandi léttir í spori. Prh.
Sama verð er á blaðinu og áður, þrátt
fyrir alla verðhækkun. Látið Ljós-
berann njóta þess, og sendið borgun
sem alira fyrst.
Áðalbjöm Kristjónsson
kennori.
Eins og sagt var frá í síðasta blaði, and-
aðist hann að heimili sínu hér í bæ, Baugs-
veg 3, 2. júní síðastl., eftir stutta legu.
Aðalbjörn var fæddur 15. des. 1871 að
Hólsgerði í Eyjafirði og ólst þar upp. Stund-
aði hann fyrst. barnakennslu um nokkur
ár í Eyjafirði og víðar, en settist síðar
að á Akureyri og kenndi þar börnum og
unglingum á vetrum, auk almennra náms-
greina kenndi' hann að leika á hljóðfæri
(bæði á fiðlu og harmonium). Var hann
mjög söngelskur maður. Hann vann öll
störf sín með trúmennsku í kyrrþey. 1
kristniboðsfélögunum mun hann hafa starf-
að á Akureyri og var alla tíð ákveðinn
trúmaður og áhugasamur um kristindóms-
mál.
Hann fluttist til Reykjavíkur 1934 og
varð þá rétt að kalla strax starfsmaður
Ljcsberans og annaðist nú síðustu árin
útsendingu og innheimtu blaðsins hér í
Reykjavík og Hafnarfirði. Má nú Ljósber-
inn sakna góðs vinar, því það mátti með
sanni segja, að hann tók ástfóstri við blað-
ið, og vann að því fyrir lítið kaup, en af
áhuga og trúmennsku. En allt óeigingjarna
starfið hans mun Guð launa honum.
Blessuð veri minning þessa góða vinar.