Ljósberinn - 01.08.1941, Page 14

Ljósberinn - 01.08.1941, Page 14
134 L JÓSBERINN mikið, að ég gat aldrei sofið af angist og kvíða nóttina, áður en. hann átti að koma til mín. Og svo batnaði mér heldur ekkert. Svo fengum við annan lækni, sem sagði, að ég þyrfti að styrkja taugarnar, og hann vildi láta mig ganga, en ég gat það ekki, Elsa, —- þaö er svo voðalega sárt. Og nti er pabbi búinn að lofa mér, að ég skulí vera laus við þessa lækna. Mér líður líka vel hérna«. »Veiztu, livað. þú ættir að gera«, sagði Stígur, »þú ættir að koma út til okkar. Pabbi minn er líka læknir, og hann lækn- aði lítinn dreng, sem líka sat í svona stól. Og nú getur drengurinn bæði hlaupið og stokkið«. »Getur hann hlaupið, er það virkilega satt?« spurði Henny og horfði sorgbitin út yfir garðinn. Hann getur hlaupið eins og þú og ég — nei, það er satt, þú getur ekki hlaup- ið enn þá, en þú munt gera það seinna, og hánn ér frískur eins og fiskur, og hann heitir Pétur. Þú ættir að segja pabba þín- um þetta«. »Já, það ætla ég að gera; en heyrðu, það er ekki víst, að það hafi gengið það sama að honum og að mér — það eru svo margs- konar veikindi til«. »0 — það er sennilega það sama«, svar- aði Stígur uppörvandi; »hann sat einmitt í svona stól, og það var líka í mjöðminni«. Henny sat hugsi ofurlitla stund; svo brosti hún og spurði: »En heyrðu, Elsa, hvernig stendur á, að þú þekkir til okkar?« Stígur roðnaði ofurlítið: »Eg þekki ekk- ert til ykkar, en stóri frændi minn sagði í dag, að ég gæti ekki klifrað yfir þessa háu girðingu, og svo var ég í miðdegissam- sæti hérna rétt hjá og dauðleiddist þar, og svo læddist ég burt og klifraði' inn fyr- ir, og svo hitti ég skringilegan náunga, dáta, sem fór með mig til pabba þíns; fyrst lézt hann ætla að berja mig, en svo varð hann svo góður og vildi, að ég kæmi inn til þín — og nú sit ég hérna«. Henny fór að hlæja. »Heyrðu, Elsa, þú. ert víst sann-nefndur fjörfiskur. Þú ert s-vo lík einni telpu, sem ég var einu sinni samtíða í skólanum. Hún var svo full af alls konar ærslum. Þú mátt trúa því, að við fundum upp á .mörgu! Hún átti fimm bræður, hvorki fleiri né færri, það var víst þess vegna, að hún var svo skemtileg«. »Komu ekki allir skólafélagar þínir ao heimsækja þig?« Henny varð alvarleg á svipinn. »Æ — þeir urðu fljótt leiðir á því. Þau komu öll í fyrstunni. En þú getur víst hugsað þér, að þeim þótti ekkert gaman að sitja hérna hjá mér inni í stcfu, og þó að ég væri í hjólastólnum minum úti í garði, þá leið ekki: á löngu, áður en þau voru öll þotin af stað í eltingaieik út um allan garð, og þá fannst pabba, að það hlyti að vera svo sárt fyrir mig að sitja og horfa á þau; það er að segja, hann sagði það ekki, en ég skildi það svo vel, og svo buðum við þeim ekki framar, og þegar þeim var ekki boðið, gleymdu þau fljótt að koma«. »Nú skal ég segja þér nokkuð«, sagði Stígur, »ég á sys... nei, ég á bróður, sem heitir Stígur, og hann kemur bráðum hing- að, og svo skal ég koma með hann hing- að til þín — og ég s,kal segja þér, að hann hefir munninn fyrir neðan nefið, drengur^ inn sá, og við þrjú gætum leikið okkur stórkostlega vel«. »Er bróðir þinn líkur þér?« »Það er alveg eins og þú sæir mig sjálfa! Ég er hárviss um, að þú sæir engan mun á okkur. Við tölum alveg eins, höfum sams konar hár, og við erum, eins og þú segir, mestu »fjörfiskar«, bæði saman«. Og nú datt Stíg allt í einu í hug, að hann gæti sagt heilmargar sögur af sjálfum sér, með því að tala í þriðju persónu, — og nú sagði hann Henny, hvað Stígur segði og gerði, þætti1 gott og hefði gaman af, og hvað Stígur gæti ekki liðið, hve duglegur Stíg- ur væri í tennis, og hve hundlatur Stígur væri í skólanum, en samt að öllu saman- lögðu skolli duglegur strákur,

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.