Ljósberinn - 01.08.1941, Blaðsíða 15

Ljósberinn - 01.08.1941, Blaðsíða 15
L JÖSBERINN 135 Það fann,st Henny að minnsta kosti, o.g hún hlustaði og hlustaði og varð rjóð í k'innum og björt í augum. Hún var orðin svo óvön leik og skemmtun nú orðið; það var alveg eins og að gleymdur og lokaður heimur opnaðigt fyrir henni á ný. »Ert þú rnikið með bróður þínum?« spurði hún. »Mér finnst, að bræður og systur séu helzt hver fyrir s'ig«. »Við erum nefnilega tvíbu,rar«, sagði Stígur tfil skýringar, »og þetta er í fyrsta sinn, sem við höfum verið aðskilin«. »En hvað það hlýtur að vera gaman að eiga tvíbúrabróður! Og hann er þá alveg nauðalíkur þér?« »Já, mjög gaman!« svaraði Stígur. 1 sama bili var opnuð hurðin að stofunni innan við svalirnar, og inn kom stúlka til að leggja á kvöldborðið. »Jæja, nú verð ég að fara«, sagði Stíg- ur og stóð upp í skyndi. »Æ-nei, Elsa«, sagði Henny, »þú mátt ekki fara, þú verður að borða kvöldmat hjá mér. — Pabbi!« kallaði h,ún ti'l föður síns, sem kom inn til að líta til þeirra, »þarf Elsa endilega að fara núna? Finnst þér ekki líka, að hún geti borðað með okkur?« »Jú, það finnst mér sannarlega; þú mátt ekki fara, Elsa; það ert þú sjálf, sem hef- ir gengið í gildruna«. Hershöfðinginn var svo glaður yfir því að sjá, hve Henny litla var ánægjuleg á svip, og hann reyndi því, eins og hann gat til að halda sem lengst í þessa nýju vin- konu, sem hann hafði útvegað dóttur sinni. »Borðaðu bara með okkur, Elsa! Þú skalt fá að fara, undir eins og það er búið; 42 getur fylgt þér heim aftur«. Stígur óskaði einkis frekar en einmitt að vera kyrr. Þegar hann sagðist verða að fara, var það aðeins ofur lítið ljósblik af þeim kurteisisvenjum, sem honum höfðu verrð innprentaðar; og honum myndi hafa þótt mjög fyrir, ef þessi ummæli hans hefðu verið tekin í alvöru, því að aðrar eins brauðsneiðar með alls kyns sælgæti ofan á hafði hann aldrei fyrr séð á ævi sinni. Það voru eintómar litlar og örþunnar franskbrauðssneiðar, og var skörpan skor- in af þeim, og svo voru þær alveg þaktar — sumar með rækjum, sumar með eggj- um, sem skorin voru í þunnar sneiðar með salatblöðum undir; á sumum voru rauðar tómatsneiðar, sem karsa-salla var stráð á, eða þá' voru þar steikarsneiðar með smá hlaup-teningum eða sultuhrúgu ofan á. Æ, Stígur þekkti ekkert til þess, að smá- telpa, sem ekki getur hreyft sig, verður smám saman leið á öllu, jafnvel á matn- um sínum, og þess vegna var reynt að gera hvern bita eins girnilegan, og frekast var unnt til þess, að hún borðaði með betri lyst og yrði rjóð í kinnum og safnaði kröft- um. En í kvöld hafði hún fengið meðhjálp. Meðan Henny borðaði eina sneið, hafði Stígur innbyrt fjórar, og hann hafði áhyggjur af því, hve mikið hann myndi geta borðað án þess að vekja hneyksli, og hann vonaði að minnsta kosti, að enginn teldi sneiðarnar, sem hurfu upp í hann eins og dögg í sólskini. »Hefirðu sagt Elsu frá skemmtuninni á laugardaginn?« spurði ofurstinn, meðan börnin voru að borða. »Nei, pabbi, ég hugsaði ekkert út í það«, sagði Henny geislandi glöð. »Þú verður sannarlega að koma líka, Elsa — við sjá- umst því bráðum aftur«. »Hvaða skemmtun er það?« »Það er bazar til tekna fyrir hælisbörn- in hérna í hverfinu«, sagði ofurstinn. »Það eina, sem ég í rauninni hefi með þetta að gera, er, að lána stjórninni garðinn hérna og lundinn og —« »ö, það verður mjög gaman«, greip Henny fxam í með ákafa. »Ég ætla að tfara út í garðinn í vagninum mínum, og 'það kemur fjöldi fólks, og því fleiri, þess betra, skilurðu, og fátæku börnin eiga að fá alla peningana, og það verða reistar smá-búðir niðri í breiðu linditrjá-göngun- um, og þar ætla frúrnar að selja yndis-

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.