Ljósberinn - 01.08.1941, Blaðsíða 16

Ljósberinn - 01.08.1941, Blaðsíða 16
136 L JÓSBERINN lega smáhluti. Ég hefi sjálf saumað heil- mikið smádót í sumar, og börnin fá líka alla bá peninga. En þú átt ekkert að gefa, Elsa, þú átt bara að koma og fylgjast með mér út í garðinn.' Ég vona, að þú viljir það, Elsa?« »Já, víst vil ég það, en gerir það nokk- uð, þótt Páll frændi minn og Dóra frænka komi með mér inn í garðínn?« O-sei-sei-nei, þann dag mega allir korna, og »42« þarf ekki að halda vörð«, sagði Henny og hló glaðlega, »þarf hann máske þess, pabbi? En það verða allir og borga 50 aura til þess að opnað verði fyrir þeim, og þú getur ekki hugsað þér alla þá smá- kjóla og blússur, sem hægt verður að kaupa fyrir alla peningana. Það á að aka mér ofan á barnahælið, svo að ég geti fengið að sjá það«, sagði Henny. »Jæja, en nú verð ég að fara«, sagði Stígur, þegar stúlkan kom og sótti tómt brauðfatið; »þau hí'n skilja víst ekkert í, hvað af mér hefir orðið«. Henny og »Elsa« kvöddust eins og gaml- ar vinkonur, og ofurstinn fylgdi Stíg nið- ur að stóra garðhliðinu og opnaði fyrir honum. Og þareð Stígur átti svo stutta le'ið til baka, þurfti hann ekki á fylgd »42« að halda. »1 næsta sinn, Elsa, hringirðu á bjöll- u;na þá ’arna«, sagði ofurstinn hlæjandi, »það er miklu auðveldara, og láttu það ekki dragast lengi«. — Stígur flýtti sér burt eftir veginum, því að nú var kom’ið að scjsetri. Hvað skyldi frænka hans segja? Honum til mikillar undrunar sat nærri því allur hópurinn enn í sömu stellingum, og þegar hann fór frá þeim. Etatsráðsfrú- in og frú Brún töluðu enn saman af mesta ákafa, Dóra gekk til og frá með nokkr- um vinkonum sínum og virtist ekki einu sinni hafa orðið hugsað til litlu frænku sinnar. En Páll lagði frá sér kroket-kylf- una og sagði: »Hvað varð af þér, Elsa, — hvert fórstu?« »Ég hefi' verið hjá Falk ofursta«, sagði Stígur talsvert rogginn. »Hjá Falk ofursta!« hrópaði Júlía frænka, sem hafði heyrt svar hans. »Pekk- ir þíi þau?« »Já, það geri ég«, svaraði Stígur og vakti almenna undrun með svari sínu. »Litla stúlkan hans heitir Henny, og henni er ek- ið í hjólastól, af því hún er véik í mjöðm- ínni, en hún er samt ósköp elskuleg«. »Já, það veit ég«, sagði frænka hans. »Ég hefi séð hana stöku sinnum. En hvers vegna sagðirðu ekki strax, að þú þekktir þau?« »Já, en þá þekkti ég þau heldur ekki, Júlía frænka«, — og glettnin logaði í aug- unum á Stíg. »Hverju hefirðu nú fundið upp á, brelíu- rellan þín?« spurði Páll. »Jú, sjáðu til, ég klifraði yfir girðing- una og inn í garðinn, og þá kom hermað- ur og klófesti mig og sagði, að þetta værí bannað, og að nú ætti ég að koma með sér og fá skell hjá karlinum«. »En góða Elsa«, sagði frú Gregers í iág- um aðvörunarróm og dauðskelkuð — — »segðu þó lágt það, sem eftir er, vandræða- anginn þinn!« »Það heyrir enginn til okkar, frænka! Svo kom ofurstinn, og hann lézt vera af- skaplega reiður, en eftir á varð hann alveg ágætur«. »Æ, Elsa ... þú gerir mig alveg grá- hærða — jæja, hvað meira?« »Jú, svo bauð hann mér inn til litlu stúlkunnar sinnar, og hún var jgvo sæt, og þú hefðir átt að sjá ljósgula hárið hennar, alveg ofan á herðar, og það ætla ég að segja þér, Júlía frænka, að undir eins og ég sé pabba, ætla ég að segja honum frá mjöðminni á henni; þú manst, að hann hjálpaði drengnum smiðsins í fyrra; og svo vildu þau, að ég borðaði með þeim kveldmat, og fyrst sagði ég: nei þ,ökk — það gerði ég sannarlega, Júlía frænka, þó að þetta væri inndælasti matuír, sem ég

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.