Ljósberinn - 01.08.1941, Side 17
LJÓSBERINN
137.
nokkurntíma hefi séð; en til allrar ham-
ingju báðu þau mig aftur, og þá máttu
trúa, að ég hámaði í mig«.
»Elsa, geturðu aldrei látið vera að tala
evona voðalega; það hefirðu lært af Stíg«.
Stígur varð sem snöggvast dálítið vand-
ræðalegur.
»Jú, frænka, ég skal reyna að gá að
mér. Og svo spurðu þau, hvort við vildum
ekki koma á stóran bazar, sem á að halda
í garðinum þeirra á laugardaginn. Viltu
það ekki, Júlía frænka?«
»Jú, eftir allt þetta, sem á undan er
gengið, erum við blátt áfram skyldug til
þess«, sagði etatsráðsfrúin, og í hjarta sínu
var hún harðánægð yfir því, að þetta há-
fína heimili, sem talið var, að enginn væri
nógu boðlegur, skyldi nú standa henni op-
ið. Henni hugkvæmdist ekki, að ástæðan
til þess, að enginn kom þangað, var alls
ekki neins konar stórmennska og dramb-
semi, heldur hatt, að hryggur faðir forð-
aðist að láta aðra grípa inn í sorg sína.
»Elsa getur kynnt okkur þar«, sagði
Páll ertnislega.
»Mér er annars ekkert um að trana mér
fram, drengur minn«, sagði móðir hans,
»en nú er það nærri því skylda mín að
heimsækja þau og afsaka, hvað frænka
mín hefir verið fröm«.
Stígur lézt ekki heyra, hvað frænka
hans sagð'i'.
»PÚ getur verið alveg róleg, Dóra«, sagði
hann borginmannlega við frænku sína, »þú
getur líka farið með okkur. Mér er að
minnsta kosti boðið og ég sagðist ætla að
taka ykkur Pál méð mér — ég hugsaði
ekkert um þig, Júlía frænka, því að þetta
var til að leika við Henny. Ég á að fara
inn um stóra hliðíð, en ég á fyrst að
hringja«.
»Við getum allt af komið okkur saman
um það«, sagði etatsráðsfrúin og lauk með
því þessu hljóðskrafi; »nú skulum við fara
burt til hinna, það á víst bráðum að fara
að borða kvöldmat, og svo verðum við að
fara að halda heim aftur«.
i Kemur út einu sinjii í mánuði, 20 síður,
og auk þess jólaiblað, sem sent verð-
ur skuldlausum kaupendum.
i Argangurinn kostar 5 krónur. — Gjalddagi
er 15. apríl.
i Sölulaun eru 15% af 6—14 eint. og 20%
af 15 eint. og þar yfir.
i Afgreiðslai: Bergstaðastræti 27, Reykjavík.
i Simi 4200.
i Utanáskrift: Ljósberinn, Pósthólf 304,
Reykjavík.
i Prentsmiðja Jóns Helgasonar Bergst.str. 27.
ubaliaiíi ífím íkkí.
LEIÐRÉTTING.
Kennslukona, Sigurbjörg Jónsdóttir, hefir vakið
athygli blaðsins á því, að gátuvísa á bls. 94 i
6. tölublaði sé ekki rétt, eins og hún er þar birt;
hún vakti einmig athygli á því,. að svo lítur út
Bem gátan. sé eftir telpunai, sem sendi hana, því
nafn hennar stendur undir henni. Vísan er eftir
Einar Benediktsson og mun vera rétt þannig:
1 gleði og sorg hef ég gildi tvenn;
til gagns menn mig elta, til óláns mín njóta.
Er hafður til reiða, um hálsa ég renn,
til höfða ég stig, en er bundinn til fóta.
Guðbjörg sendi Ljósberanum annað efni um
leið og gátuna, en þáð mun mest vera óaðgætni
vorri að kenna, að nafnið var sett undir gátunai
Stígur varð hálf vandræðalegur á svip-
inn, er honum varð hugsað til að borða
kvöldmat á ný ... en það gæti nú annars
verið nógU: gaman að sjá, hvað hér væri
í boði.
Framh.