Ljósberinn - 01.08.1941, Blaðsíða 19
LJÖSBERINN
13
að drepa Nel né nokkra manneskju aðra«.
Skyndilega fann hann kulda Iæsast
um líkama sinn, en það var önnur kulda-
tilfinning en áður — hún stafaði ekki af
hræðslu, heldur' af óbifanlegri ákvörðun,
sem hann hafði tekið, og gerði hjarta hans
kalt eins og stál. »Það er ekki morð«, sagði
hann við sjálfan sig. »Þeir eru þorparar,
böðlar og manndráparar,, og líf Nel er í
hættu. Eg er neyddur til þess«. Hann nálg-
aðist þá, staðnæmdist aftur og lyfti' riffl-
inum með eldingarhraða upp að kinninni.
Tvö skot bergmáluðu í klettunum. Eins og
sandpoki féll Gebhr til jarðar. Chamis valt
um í söðlinum fram yfir makka hestsins.
Óttist ekki.
Drengur einn lítill átti' rúm þétt við hlið-
ina á rúmi pabba síns. Hann vaknaði oft
á nóttunni, og varð þá hræddur, þegar
hann sá, að allt var dimmt. Hann rétti þá
hendina að rúmi pabba og kallaði:
»ö, pabbi, haltu í hendina á mér!« Þeg-
ar svo pabbi' hans lagði höndina hans í
stóru og sterku höndina sína, þá hvarf
litla drengnum öll hræðsla og hann sofn-
aði vært.
Vér þurfum ekki að óttast. 1 biblíunni
standa orðin: öttastu ekki!« jafn oft og
dagarnir eru margir í árinu eða eitt: »Qth
astu ekki« fyrir hvern dag.
Barnahugsun.
Ég geng um kröld, er sólin signir lönd,
og svalur andi leikur mér um kinnar.
ég fiun það glöggt, að guðleg náðarhönd
mér götu bendir heim til dýrðar einnar,
Ég óska, að synd mig aldrei bindi í bönd,
né blindað geti augu gálar minnar,
svo gleymi ég því að guðleg náðarhönd
mér götu bendir beim til dýrðar sinnar.
Sig. Jú). Jóhannesson.
Atlar nýjar bækur,
jafnóðum og þær koma
á bókamarkaðmn, fást í
Bókaverzlun ísafoldar
Nýjustu bækurnar þessa
dagana eru; Sagnir og þjóð-
hættir, eftir Odd Oddson á
Eyrarbakka; Sagnþættir úr
Húnaþingi; Mánaskin, ljóða-
bók eftir Hugrúnu; SÖguleg-
asta ferðalagið, eftir Pétur
Sigurðsson, og Arfur, skáld-
saga eftir Ragnheiði Jóns-
dóttur.
Frakka-cifataefni
ávalt fyrirliggjandi
í fjölbreyttu úrvali
1. flokks saumastofa.
G. Bjarnason
& FjelstedE|M
Klæðaverzlun & saumastofa
Aðalstræti 6 — Sími 3369.