Ljósberinn - 01.07.1942, Qupperneq 5

Ljósberinn - 01.07.1942, Qupperneq 5
EJOSJBERINN 89 svo hlíðróma, þegar hann minntist á »dal- *nn sinn«, — ég skyldi það betur síðar, hvernig á því stóð: honum þótti svo inni- lega vænt um þessa fögru sveit, þar sem hann hafði lifað gleðirík hernsku-og æsku- ar með ástríkum foreklrum og í stórum hóp góðra og glaðværra systkina. Víst var hugurinn þess vegna oft þar nyrðra og bess vegna var klökkvi í röddinni, þeg- ar hann var að segja mér sögur »úr daln- utn«. Þetta var svipað um mömmu. Hún undi sér aldrei á Seyðisfirði — það var Eyjafjörður og Akureyri, sem allt af var c'fst í hennar huga. v Þegar húið var að taka þessa ákvörðun, var ekki eftir neinu að bíða. Mamma fór strax að undirbúa ferð mína, og var ekki uð því að spyrja, að hún vildi gera mig vel úr garði. Og það var ekki nóg með bað, að hún ætlaði að láta mig vera vel út búinn að fattiaði, sem raðað var vand- ^ega í vænt »koffort«, heldur leitaðlst hún hka við, að fylla annað ílát alls konar leiðbeiningum og heilræðum, — en það Var sálarskjóðan eða minnið, sem átti að Seyma það ferðanesti. Hún var alveg 'uiður sín, hún elsku mamma mín, út af bvh að þurfa að sjá af mér eða sleppa af mér hendinni, — henni þótti svo vænt Um drenginn sinn, þó. að hann væri stund- Um óþægur. En þegar hún sannfærðist um bað, að ég væri raunverulega eitthvað las- Utn, en þó ekki meira en það, að áliti vin- ar okkar læknisins, að ég myndi hress- ust, ef ég gæti notið sveitarvistar, þar Sem ég fengi mikla mjólk að drekka og v*ri í heilnæmara andrúmslofti, vildi hun fyrir hvern mun gera þá tilraun, ef 'uér gæti orðið það til góðs. Ekki þurfti lengi að bíða eftir fari norð- Ur> því að þá voru samgöngur miklu betri lyrir austur og norðurlandi en þær eru Uú. Nolckrum dögum eftir að ferðalagið Vílr ákveðið, kom »Mjölnir« gamli til Seyð- lsUarðar, frá útlöndum, og skyldi fara til Akureyrar. »Mjölnir« var gamall kláfur, ferðlaust flutningaskip, með tveimur eða A ku reyra rki rkja. þremur farþegaklefum, — og var það kall- að »fyrsta pláss« (þ. e. farrými). Skip- stjórinn var gamall skrjóður, danskur, — kunningi pabba, og bað pabbi hann »fyr- ir mig«, — en þernuna hafði hann beðið að »hafa auga á mér«, svo að ég færi méc ekki að voða á leiðinnj. Mér er ákaflega minnisstætt þetta ferða- lag með »Mjölni«, það liggur við, að ég sjái enn í huganum allt, sem gerðist á leið- inni og gerðist þó ekkert merkilegt. En »himininn var heiður og blár og hafið skín- andi bjart«, alla leiðina norður í Eyja- fjörð — glampandi sólskin á hverjum degi, og mér var sjálfum sólskin í huga. Ég varð sem »nýr maður« strax þeg'ar við vorum að sigla út Seyðisfjörð, og á leið- inni var ég yfirleitt hressari miklu og sprækari, en ég hafði verið undanfarnar vikur, og auðvitað var ég kátur yfir því. Nú kann einhver að segja: »Pú hefir þó ekki verið marga daga á leiðinni frá Seyðisfirði til Akureyrar? Og engin furða, þó að fáfróður taki þannig til orða, því að þetta er ekki nema sólarhrings ferðalag og tæplega það. En við vorum nú vik- una að mjaka okkur norður á Mjölni gamla, og mér þótti ekkert að því. Það

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.