Ljósberinn - 01.07.1942, Side 15

Ljósberinn - 01.07.1942, Side 15
LJÖSBERINN 99 um, sem sloppinn var vír klóm þeirra, og sneru sér síðan öskuvondir að Andrési. »Jæja, tetrið, það varst þá þu, sem þurft- ir að álpast hingað til þess að eyðileggja þetta fyrirtæki okkar«, ýskraði anriar þorparanna, »það er víst bezt, að við létt- um á þér þessu iítilræði, sem þú kannt að hafa meðferðis. Þú getur komið í stað- inn fyrir hinn dónann«. Og hann lét ekki sitja við orðin tóm, heldur réðust háðir ræningjarnir á hann, og' gripu hann með járnklóm sínum. Andrés varð heiftúðlega reiður og sner- ist til varnar, þó öll vörn væri algerlega gagnslaus og bersýnilega hættuleg. Barð- ist Andrés hraustlega og Lappi, sem ýlfr- aði af grimmd, réðist hamstola á fætur tantanna. En þeir spörkuðu geðvonzku- lega í hundinn, og kastaðist hann þá lang- ar leiðir og lá þar gapandi. Þegar hinn ötuli og ósérhlífni félagi Piltsins var fallinn, varð hann ofurliði borinn á svipstundu. Annar illræðismann- atina greip því heljartaki fyrir kverkar honum, að honum sortnaði fyrir augum. Svo voru rifnir frá honum allir pening- arnir, sem hann hafði aflað sér með hin- 'tni mestu erfiðismunum, og loks hörðu Peir hann í höfuðið með krepptum hnef- anum, svo að hann steyptist til jarðar og 'á þar meðvitundarlaus. Hann raknaði úr yfirliðinu við það, að vitthvað hlýtt og rakt kom við andlit hans. Opnaði hann þá augun og sá og fann að Lappi var að sleikja hann. Mann lá kyrr stundarkorn og horfði inn í gulu, Hygglyndislegu augun vinar síns, en heili bans barðist við að reyna að muna, 'nvaö lyrir hefði komið. Loks settist hann upp þó hann hefði óþolandi verki í öllum lim- km, og fengi sáran svima yfir höfuðið. Lessu næst leitaði hann í vösum sínum °g leit umhverfis sig. »ötætis þorpararnir, þeir hafa lekið hvern einasta grænan eyri«, emjaði hann. Og hvernig höfðu þeir svo líka farið Pteð hann. Hann gat trauðla staðið á fót- unurn og ekki hreyft höfuðið nema að hann logverkjaði í hálsinn. Og það voru kolsvartir marblettir á hálsinum á hon- um undan krumlum þorparanna. Veslings drengurinn varð að láta fallasL niður á vegarbrúnina, og skalf al' kulda eftir aö hafa legið svo lengi á rakri jörðinni. Tenn- urnar glömruðu í munni hans og það fór um hann kuldahrollur, og það var yfir honum svimá-drungi, eins konar fyrirboði dauða úr \’osbúð og kulda. Skyldi hann , nú eiga að deyja hér á þjóðveginum? En hvaða hljóð var nú það tarna, sem hann heyrði. Eða var það iiara suða, drun- ur eða klukknahljóð fyrir eyrunum, af því að hitasóttin, undanfari dauðans, var bú- in að gagntaka hann? Nei, það var sannarléga vel kunnugt hljóð. Það var fjarlægur suðandi dynur í hifreiö, sem nálgaðist óðum. »Ef ég gæti stöðvað bifreiðina, þá væri um frelsun að ræða fyrir mig, en á hvern hátt má það verða?« Honum kom til hug- ar að veifa með vasaklútnum sínum, en það mundi tæpast sjást í myrkrinu, auk þess gat hann varla hreyft handlegginn. En þá sá hann Lappa allt í einu þjóta eins og ör í áttina til bifreiðarinnar. Og nú sá hann bifreiðarljósin og í bjarman- um af ljósunum sá hann Lappa, sem lék þar allar mögulegar hunda-»kúnstir« til þess að stöðva bifreiðina. Síðan rauk hund- urinn í brott í hendingskasti, settist við hliðina á Andrési, og ýlfraði hátt. Bifreiðin hætti að suða, og nam skyndi- lega staðar frammi fyrir þessum,kynlegu félögum. Þrjár manneskjur stigu út úr bifreiðinni, tveir skrautbúnir karlmenn og smástúlka, 7—8 ára gömul. Eldri karl- maðurinn ávarpaði Andrés: »Hvað gengur að þér, litli vinur minn? llefir þú orðið fyrir slysi?« Drengurinn sagði nú frá hinni sorglegu sÖgu um árás ræningjanna, og hversu hjálparvana hann var, og bað þessu næst ferðamenn þessa að lofa sér að vera raeð í bifreiðinni til næsta þorps.

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.