Ljósberinn - 01.07.1942, Side 26

Ljósberinn - 01.07.1942, Side 26
110 L JÖSBERINN Stígur fengið svalað löngun sinni«, sagði Júlía frænka, »svo getur þú, Páll, komið þangað með EIsu. Hún kynni líka, að láta svo lítið sem að bcrða eina köku«. »Bara að það verði þá nokkur efti'r«, tautaði blíða »systirin«, og svo fóru þau hvert í sína áttina og mættust aftur klukkustund síðar og settust við skemmti-' legt borð undir stórum trjám í sólbjört- um garðinum, þar sem kyrrð og friður morgunsins ríkti enn í fullum mæli. Elsa athugaði nákvæmlega hverja mann- eskju, sem fram hjá gekk, en þó einkan- lega smábörnin, því að hún hafði yndi af börnum. Og hún tók mjög vel eftir bún- ingi Kaupmannahafnarkvennanna. »Dóra!« sagði hún einu sinni með munninn troð- fullan af köku, »nei, hefirðu séð annan eins hatt á ævi þinni?« »Þú mátt ekki tala svona hátt um ókunn- ugt fólk, Stígur«, sagði Júlía frænka í að- vörunartón. »Konan sneri sér alveg við; þetta þykir ekki sæmilegt, skal ég segja þér«. Og hinn raunverulegi Stígur steig svo fast cfan á tærnar á systur sinni, ao henni 3á við að hljóða upp. »Þú skalt ekki taka þér það nærri, Stíg- ur, þó að mamma finni að við þig«, sagði Dóra, sem sá að »frændi« hennar varð eldj rauður í framan — en það var mest af gremju yfir fótasparki Stígs. »Mamma jfann líka oft að við okkur, þegar við vor- um minni. En hatturinn var líka hræði- 3egur«. »0, þið þurfið þess nú sannarlega með enn þá«, sagði Júlía frænka mjög náðar- samlega og brosti við, »og bróðurbörn mín, Stígur og Elsa, eru mér svo nærkomin, að ég leyfi mér að hafa eftirlit með þeim líka«.-------- »PáIl«, hvíslaði Stígur að frænda sín- um, »nú finnst mér ekkerfc gaman að vera hérna lengur, getum við ekki gengið dá- lítið?« Júlía frænka heyrði hvísl hans og leit á úrið sitt. »Já, það er víst bezt, að við höldum heim á leið núna«, sagði hún; pabbi ykkar nefndi engan ákveðinn tíma; en þau geta komið um þrjúdeytið, og þá verðum við að vera heima öll saman«. Þau stigu á sporvagn rétt fyrir utan . garðinn, og frúnni og Dóru til miikillar undrunar tróð »Stígur« — þ. e. a. s. Elsa — sér inn í vagninn með þeim. ■»Ætlar þíi líka inn í vagninn?« spurði Júlía frænka hissa. »Elsa og Páll hanga alilt af utan í«. Stígur sendi systur sinni óblítt augnaráð, og Elsa flýtti sér að segja: »Eg- hélt, að það væri ekki rúm fyrir fleiri utan á«. Síðan fór hún út til hinna beggja. »Fífl!« hvíslaði Stígur, þegar hún kom úfc aftur, »er nú ekki bráðum nóg komið af öllum 'þínum axarsköftum!« »Ef þú verður ekki skikkanlegur, þá segi ég allt saman«,, hvíislaði Elsa aftur hvat- víslega. Stígur leit á hana með þögulli fyrirlitn- ingu og sneri sér svo að Páli, en: hann var glaðvær og góðlyndur að vanda, og eyddi fljótt þeim urgi, er hann grunaði að væri á milli systkinanna, og þegar heim kom, var allt í sátt og samlyndi og bezta lagi. Undir eins og' þau voru komin úr yfir- höfnunum, stilltu tvíburarnir sér upp úti við gluggann og stóðu þar, þangað til þau heyrðu í bifreiðinni, sem pabbi jjeirra og Margrét komu með. Hann hafði ekki fyrr numið staðar, en þau. bæði þutu út um dyrnar og ofan stig- ann. Bang læknir virti þau bæði vel fyrir sér, eihkanlega Stíg, og brosti glettnislega. »Jæja,, börnin góð«, sagði hann, er hann gekk upp stigann og hélt utan uin herð- arnar á þeim báðum. »Hvernig líður svo herra Elsu og ungfrú Stíg?« Báðir syndaselirnir námu staðar, Elsa hló, erí Stígur leit framan í hann, dauð- skelkaður. »Þú þarft ekki að leika þetta lengur, Stígur«, sagði' Elsa. »Pabbi veit allt sam- an. Hann uppgötvaði mig hjá Ström«. Stígur var orðlaus. Margrét hló. jt

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.