Ljósberinn - 01.07.1942, Qupperneq 27

Ljósberinn - 01.07.1942, Qupperneq 27
ljösberinn 111 »Hélstu að ég' væri blátt áfram gras- asni?« spurði læknirinn og hristi Stíg góð- látlega, »eða heldurðu kannske,, að ég þekki ®kki hug'vitssömu tvíburana mína?« »Pabbi, hélztu þó ekki, að ég væri Stíg- l]i' á leiðinni til Ström?« spurði Elsa. »Jú, ég hugsaði ekkert út í það í fyrst- Uttni. En þú skilur, að það gat ekki staðiö lengi yfir. Pví þó' að þú sért öðru hvoru jafn mikill durgur og draslari og bróðir Þinn, þá er þó allt af munur á dreng og telpu, En mér fannst,, að Stígur hefði gott af því að dúsa sem lengst í telpufötunum, °k þes,s vegna bað ég Eísu urn að þegja, Þangað til ég kæmi, því að ég býst nú við, Stígur, að þér hafi ekki þótt þetta sérlega skemmtilegt?« »Það var verulega andstyggilegt«, sagði Stígur með sannfæringarkrafti,, »en viss* lrðu, pabbi, að Júlía frænka ætlaði að sækja EIsu?« »Nei*, drengur minn, það voru nú forlög- ln. sem gripu þar fram í og gerðu allt sam- an enn furðulegra og flóknara«. »Hvernig áttaði pabbi sig á þér, Elsa?« »Hún fór að sauma brúðufiöt«, sagði Mar- ki'ét hjæjandi. _ »Nei,t nú befi ég aldrei* vitað annað eins tííl! Yeiztu það líka, Gréta, að hún kom uingað með kattarrispu, svo að það hefði verið ómögulegt fyrir okkur að hafa fata- skifti«. »Ég mátti það heldur ekki vegna pabba«, greip Elsa fram í, »og þú hefðir líka leik- ið þér að kettlingunum, ef það hefðir ver- ið þú«. »Viljið þið nú hætta þessu, - hérna kemur Júlía frænka!« I gangforstofunni stóðu þau Júlía frænka, Páll og Dóra. »Velkomi'nn, William bróðir og Margrét, velkomin! Ég- hélt annars, að þið hefðuð aldrei ætlað að komast upp stigannk »Jú, það tókst nú loksins«, sag'ði bróðir hennar hlæjandi, »en við höfðum ýmislegt að tala um, Stígur, Elsa og' ég — fari'ð þiö nú bæði inn og hafið fataskifti, svo skai ég á meðan skýra Júlíu systur frá öllu saman«, O'g’ tvíburarnir, sem voru himinlifandi glöð yfir því að þurfa eigi að vera áheyr- endur að þessum útskýringum, voru horf- in í sama vetfangi. Þegar þau komu ofan aftur stundarfjórö- ungi síðar. var etatsráðsfrúin enn ekki bú- in að ná sér. »Nei, aldrei á æfi minni hefi ég heyrt annað eins! En Jretta er svci öldungis ótrú- legt ... nei, líttu bara á þau, Dóra, getur þú séð mun á þeim?« »Nú fer ég að skilja, hvers vegna þú varst svo duglegur að klifra«, sagðf Páll, »því ég verð að segja — að af telpu ...« »Og það var þess vegna, sem þú klifr- aðir yfir girðinguna og niður í garð ofurst- ans!« sagði Dóra. »Henny!« Stígur greip nafnið á lofti, »ó, pabbi,, ég verð að tala við þig um Henn,y!« »Hver er Henny, drengur minn?« »Nú skulum við fyrst borða almenni- lega«, greip Júlía frænka fram í. »Mat- urinn verður kaldur, meðan við stöndum hérna og spjöllum, — taktu hattinn af þér, Margrét mín, og svo skulum við ganga til borðs. Þið hljótið að vera orðin hálf- dauð úr hungri!«

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.