Ljósberinn - 01.07.1942, Page 28

Ljósberinn - 01.07.1942, Page 28
112 LJÖSBERINN FJÓRTÁNDI KAFLI. Stígur var í mjög' einkennilegu skapi, þegar það réðist svo, að þau sk*ldu fara í heimsókn til Falks ofursta seinni hluta dagsins. Hann haíði í fyrstu hugsað sér, að pabbi lians ætti að hjálpa Henny. En þegar Stíg- ur var búinn að segja honum frá henni og hafði með því vakið áhuga föður síns, sem sérstaklega haf'ði beint athygli sinni að þess háttar sjúkdómum, varð það úr, að Bang læknir heimtaði, að bæði Stígur og Elsa skyldu fara með honum, og aö Stígur skyldi segja »sögu sína« sjálfur og ástæðuna tii þess, að hann hefði »siglt undir fölsku flaggi«. Og’ þó að þetta hefði reynst auðvelt hjá Júlíu frænku, þá fannst Stíg samt afar óþæg'ilegt að eiga það fyrir höndum hjá Henny og föður hennar. Þeim þremur varð því eigi skrafdrjúgt á leiðinni til ofurstans. Hermaðurinn opn- aði hliðið fyrii’ þeim, og þar eð læknirinn og Stígur. gengu á undan, spjallaði hinn p;óði »42« við Elsu, sem hann hélt að væri gamli kunningi sinn, og Elsa hafði garn- an af að láta hann lifa í þeirri trú. Játningar-raunin gekk þó- betur, en bú-> i'st var við. Ofurstinn skellihló að öllu and- streymi og óhöppum Stígs, og- Henny var alveg í loftinu yfir þessum ævintýralegu atburðum, að systir skyldi hafa orðið að bróður. Hún hafði til þessa aldrei lifaö annað eins. Meðan Stígur og Elsa spjölluðu glaðlega við Henny úti á svölunum, héf Bang' lækn- ir máls á því við föður hennar inni í stof- unni, hvort hann mætti ekki fá að taka Henny til læknismeðferðar, en þetta var viðkvæmt málefni og' erfitt. Ofurstinr, var í fyrstunni mjög tregur til ]?essa. Hann skýrði frá því, að fyrst eft- ir áfalli'ð hefði læknirinn gefið upp alla von með hana, af því h,ann hélt, að mæn- an hefði s'kaddast, og því næst, hvernig hún smám saman hefði styrkst aftur, en var svo í sífellu pínd og kvalin með ein- tómum rannsóknum og tilraunum með aö láta hana reyna að stíga í veika fótinn, en það h.vorki gat hún né þorði. En allar mótbárur ofurstans strönduðu á þrálátri bejðni læknisins um að fá að skoða barnið. Hann lofaði því, að ef ekk- ert væri við þessu aí^ gera, skyldi hún ekki verða ónáðuð nema í þetta eina, sinn. Loksins stóð ofurstinn upp og fylgdi lækn- Snum inn ril Henny. Lækniri'nn var sérlega laginn að um- gangast börn og nú var það alveg eins Cig fjórði' maður bættist við í kátan hóp- inn, og loksins drap hann á, eins og’ i spaugi, að eiginlega gæti það nú verið gam- an að líta á þessa mjöðm, sem hinir lækn- arnir hefðu sagt að væri alveg ófær, og að þó það væri bæði gott og' skemmtilegt að sitja hérna á svölunum innan um rósii', þá væri þó ennþá skemmtilegra að ganga um í garðinum. Henny horfði á föður sinn og sagði, að svona skemmtilegur læknir gæti nú reyndar feng'ið að líta á mjöðnr- iha — hvað sem öðru liði. Læknirinn hafði spurt hana út um tilfinnmgar hennar og líðan í veika fætinum, og það kom alveg heim við það, sem hann hafði vænst. • Ofúrstinn stóð upp og var mjög fölur af geðshræringu, en hann brosti til Henny og sagði, að úr því hún sjálf vildi þetta, þá skyldi það svo vera. Svo hringdi liann á ráðskonuna. Systkinin fóru út í garð- inn, og læknirinn skoðaði nákvæmlega mjöðmina á Henny. Þegar.búið v.ar að kalla á Stíg' og Elsu inn aftur, hló Henny til þeirra og sag'ði, að það hefði ekkert verið; pabbi þeirra hefði tekið svo létt og gætilega á sér, að hún hefði næstum ekkert fundið til. »Eg h.efi nú sag't ofurstanum«, sagði læknirinn, »að mjöðmin á Henny sé úr liði. Það var hún líka á drengnum hans Jens smiðs, og þú, Stígur, hafðir því getið rétt til. Þess vegna ættir þú nú að flýta þér að leggja niður þína hræðilegu leti og leitast við að verða einhvern tíma dug-

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.