Ljósberinn - 01.02.1944, Blaðsíða 17

Ljósberinn - 01.02.1944, Blaðsíða 17
LJÓSBERINN 17 Fólkið skrækti af ánægju, og meðan Zerbinó og Vaps luku við næsta hluta sýningarinnar með margvíslegum listinn, gekk Bríó á afturfótunum milli áhorfend- anna með disk í munninum. Væri ein- hver, sem ekki vildi leggja neitt á disk- inn, krafsaði hann með löppinni niður í jarðveginn, eins og liann vildi segja: „En gefðu mér þá eitthvað!“ Og það var ekki svo lítið, sem hann fékk. Þegar við komum aftur til veitingahússins, pantaði Vitalis lianda okkur heitan mat og allir vorum við ánægðir með daginn. IV. Á ferð. dvöldum nokkra daga í Berry, en héldum síðan af stað á ný. Vitalis hafði hugsað sér, að við hefðum vetrardvöl í heitara loftslagi, og hann talaði um að ná til borgar, sem heitir Biarritz. „En fyrst komum við til Bordeaux“, sagðj liann. Ég leit forviða á hann. „Hvernig getið þér ratað um landið?“ spurði ég. „Eruð þér svona kunnugur í því?“ „Nei, en ég lít á landabréfið, drengur minn“, svaraði liann brosandi. „Landabréf? Hvað er það?“ „Þú ert þá ekki læs?“ „Nei“, svaraði ég, „en ég veit hvað bók er. Það er svoleiðis, sem menn syngja eftir í kirkjunni“. „Það er bezt, að þú lærir að lesa“, sagði Vitalis, „og ef þig langar til, get ég kennt þér ýmislegt“. Nú fékk ég tilsögn í reikningi og skrift. Vitalis átti gamla, ítalska bænabók og af henni lærði ég bæði að tala og lesa ít- ölsku. Vitalis liafði ánægju af að segja mér til, og brátt byrjaði ég að tala við hann á fallega móðurmálinu hans. Þeg- ar ég hafði lokið við bænabókina, keypti Vitalis landafræði og landakort handa mér og kenndi mér að rata eftir því. Þegar við komum til einhvers staðar, sendi Vitalis mig alltaf út fyrsta morgun- inn, ásamt Bríó, svo að ég gæti séð mig um. „Úr því þú liefur tækifæri til að ferð- ast á svo ungmn aldri“, sagði Vitalis, „þá verður þú að notfæra þér það. Sé eitt- hvað, sem þig langar til að fá skýringu á, þá spurðu mig. Ég hef ekki alla mína æfi verið umferðaleikari og veit sitt al' hverju“. Ég lærði einnig að syngja. Þegar Vital- is uppgötvaði, að ég hafði söngeyra, þá safnaði liann saman peningum nokkurn tíma til að kaupa hörpu handa mér. Og mikill fögnuður var það, þegar hann dag nokkurn kom lieim með litla, létta hörpu, sem ég gat borið í bandi á öxlinni. Það leið ekki langur tími þar til ég gat leikið og sungið smá lög, sem Vitalis kenndi mér. Það var sérstaklega einn söngur, sem ég liafði dálæti á, mér þótti hann eiga svo vel við um mig; hann hét: „Litlí hörpuleikarinn“, og var svona: Ég legg af stað svo undur einn, þó engan veit ég þann, sem fýsir á að syngja söng ef svangur vœri liaun. En það er liörpuleiksins list, að látast meira en er og gleðja hljómum heillasöngs er hungrið sárast sker.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.