Ljósberinn - 01.01.1946, Síða 7

Ljósberinn - 01.01.1946, Síða 7
LJÓSBERINN 7 Gölluðu frímerkin Eimleslin blés og þaut af staS. Jens teygði sig út um gluggann. „Vertu sæl, mamma“, hrópaði hann og veifaði með húfunni. Móðir hans, sem stóð á stöðvar- pallinum, brosti. „Vertu sæll, Jens“, sagði hún, „góða ferð, og mundu nú að skrifa mér á hverjum degi“. „Það skal ég muna. Vertu sæl, vertu sæl!“ Hávaðinn í lestinni var svo mikill, að orðin drukknuðu. Vagnarnir hlykkj- uðust eins og höggonnar eftir teinunum af stöðinni í Stokkhólmi. Það leið ekki á löngu, þar til frú Lund sá ekki neitt nema húfu sonar síns. Hún lagði af stað heim aftur. „Nú er ég alein eftir“, hugs- aði hún, „en Jens er góður drengur, og hann skrifar víst á hverjum degi“. Frú Lund var ný orðin ekkja og var fátæk. Þá sagði Kristinn: „Nú sé ég það, að betra er að bíða kom- andi dýrðar en að girnast gæði þessa heims“. Þá mælti Fræðari: „Þú hefur rétt fyrir þér, því að það, sem sést, er stundlegt en hið ósýnilega er eilíft. (2. Kor. 2, 18). En gæta verður þú þess, að sýnilegu hlutirnir og lioldlegt hugarfar vort er svo náið hvort öðru og hið ósýnilega og eilífa svo fjarstætt voru holdlega hugarfari, að liið sýnilega verð- ur oss kært en hið ósýnilega og eilífa fjarstætt oss, eins og raun verður á“. ætti betra með að vinna fyrir Jens. En það kostaði inik- ið að byrja og hún átti ekkert til. Nú vann hún fyrir sér með saumaskap og þegar bróðir hennar, sem átti lieima í Norður-Svíþjóð bauð Jens lieim til sín í sumarleyfinu, þáði hún heimboðið. Raunar mundi hún sakna sonar síns. Það vissi hún, en hann mundi hafa gagn af ferðinni, og hún gat sparað ofurlítið sam- an, því að Jens þurfti mat sinn, og allt var svo dýrt. Um þetta hugsaði frú Lund á leiðinni lieim til sín, og Jens hugsaði líka um það sama, svona til að byrja með, en ekki leið á löngu áður en liann gleymdi öllum áhyggjum, því það var margt, sem fyrir augun bar. Móðurbróðir hans tók vel á móti hon- um. Hann var bóndi, og Jens hafði margt að sjá. Allir voru góðir og glaðir, og þetta var liátíð fyrir borgardrenginn. En þó dagarnir liðu 1 leik og glaumi, þá gleymdi Jens ekki mömmu sinni. Þó að langt væri til pósthússins, fór Jens þangað á liverj- um degi með bréf, og í því voru allar frétt- ir, sem Jens gat til tínt. Póstafgreiðslu-

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.