Ljósberinn - 01.01.1946, Qupperneq 10
10
LJÓSBERINN
L
MarkáSsdagui' í heimsborg.
ÁriS 1865 var stór, auð landspilda, er
nefndist Stephney-völlurinn, á þeim stað
í London, þar sem Stjórnarskurðurinn
tengdist Thems-ánni. Völlur þessi náði
alveg niður að ánni. Þarna á milli London-
og West-Indía-skipakvínna, fátækrahverf-
isins í Eastend og kínverska borgarhlut-
ans Limehouse skeðu daglega ævintýra-
legustu viðburðir.
Fyrstu einkenni dagsins urðu tæplega
greind í austri, þegar Stephney-völlurinn
fylltist af hávaðagjörnu og erilsömu fólki.
Frá nærliggjandi götum komu skröltandi
kerrur og vagnar inn á völlinn. Tjöldum
og litlum tréskúrum var komið fyrir á
furðu skömmum tíma, en þess ber að
geta, að þetta var dagleg iðja. Við hafn-
arbakkann var líka erill og önn. Hver
fiskibáturinn af öðrum lagðist upp að.
Ekki leið á löngu, unz bátarnir urðu svo
margir, að þeir komust ekki fyrir við
hafnarbakkann. Þeir, sem þannig var
ástatt fyrir, lögðust upp að síðu náung-
aíis. Bjóðum og körfum fullum af margs
konar fiski var hent upp á bakkann.
Uppskipunin fór ekki hávaðalaust
fram. Samtöl manna í gamni og alvöru
ásamt margs konar hrópum og köllum
blandaðist saman í einn graut og mynd-
aði hin ferlegustu óhljóð.
Fiskurinn lá ekki lengi á liafnarbakk-
anum. Hafnarverkamenn í stórum tré-
klossum fluttu bjóðin og körfurnar áleið-
is til torgsölustaðanna, þar sem neytend-
urnir keyþtu fiskinn.
Hópur af máfum sveif stöðugt yfir
markaðsstaðnum og gripu þeir hvert tæki-
færi, er gafst, til gripdeilda.
Nokkru áður en stóra klukkan í St.
Stephens kirkju sló fimm, var fiskimark-
aðurinn byrjaður.
Fyrir liádegi urðu fiskikaupmennirn-
ir að yfirgefa markaðsstaðina. Bátarnir
sigldu frá hafnarbakkanum til fiskjar á
ný út í Flensborgarmynnið eða skipa-
skurðinn. En það færðist samt ekki ró
yfir staðinn. Aðrir kaupmenn komu með
ódæmi af liinum ólíkasta varningi. Þang-
að var t. d. komið með appelsínur, sítrón-
ur, lauk, salt, kjöt, alifugla, gamla vefn-
aðarvöru og annan áþekkan varning.
Ilróp og skvaldur á öllum tungumálum
heims heyrðist allan daginn. Niður Stjórn-
arskurðinn sigldu vöruflutningapramm-
arnir. Flestir voru fullfermdir af kolum,
en einnig voru margir með lifandi naut-