Ljósberinn - 01.02.1946, Page 11

Ljósberinn - 01.02.1946, Page 11
LJÓSBERINN 31 Þá sagði fjárhirðirinn somu soguna og hann hafði sagt Haraldi. Og þá fékk AÍi einnig óstöðvandi lönguri til að reyna krafta síná við risann, og frelsa prins- essuna. „Varaðu þig á dýrunum“, sagði liirð- irinn. „Þau hræðist ég ekki“, sagði Ali. „Þú sagðir áðan, að risinn væri dauðlegur?“ „Það er hann. Hann mun einhvern- tíma falla fyrir mennskum manni. En sá maður, sem á að drepa hann, er víst ekki fæddur enn“. „Hver veit?“ sagði Ali. Og svo hélt hann áfram. Þá kom hann þangað, sem hin hræðilegit dýr héldu sig. Já, liræði- leg voru þau. En hann sneri ekki aftur, °g hann fór ekki að lilaupa til að forðast lJau, lieldur gekk hann beint inn í hóp- lnn. En þegar þau gerðust nokkuð nær- gongul og honum 'sýndist þau ætla að fáðast á sig, sló hann til þeirra með seiðstafnum. Á sama augabragði liopuðu þaú til baka, fyrst liægt og hikandi, svo fóru þau að hlaupa, og þegar liann sá þau síðast, voru þau á hröðum flótta. . Svo hélt hann áfram að höll risans, barði þar að dyrurn og var hleypt inn. Gamla konan, sem hleypti honuni inn, sagÖi honum, hvað hræðilegur risinn væri. „Hefur þú ekki orðið þess vör, að bróðir minn liafi komið hér?“^spurði Ali. „Jú! Hann hefur komið hér, og ris- llln hefur breytt honum í steinsúlu, og þegar hann hefur staðið nógu lengi, tek- llr risinn hann og mylur liann í mél, og Svo bakar hann brauð úr steina- og beina- mjöli“. „Já, við skulum nú sjá, hver mulinri verður“, sagði Ali. Þá heyrði Ali að risinn var að korna. Og hann heyrði hann muldra á einkenni- legu tröllamáli: „Hér er lykt af mannabeinum. Þau skal ég taka og mylja í mél, og baka brauð úr og éta. Brauð — brauð“, margstagh aði hann. Svo sá liann unga manninn og lagði fyrir liann hinar þrjár spurningar. „Hvað er það, sem er hættulegast þegar það er minnst og mjóst?“ Ali vissi það ekki. En til allrar gæfu datt honum nú í hug orðin þrjú, sem seiðkonan gaf honum. Það er bezt að reyna þau. Hann svaraði því hiklaust: „Það er brú yfir straumhart Vatn“. Það var fyrsta höfuðið, sem spurði, og nú seig það niður á öxl risans. Þá segir annað höfuðið: „Hvað er án upphafs og enda, og án upp eða niður?“ „Kúla“. Þá seig annað höfuðið, en það þriðja spurði: „Dautt ber lifandi, hvað er það?“ '„Það er skip“. Þá seig þriðja og síðasta höfuðið, því nú vissi risinn að vald hans var á enda. Ali tók þá öxi og hjó fyrsta höfuðið af — svo annað og seinast það þriðja. Þegar hann hjó fyrsta höfuðið af, sagði það: „Bara að ég hefði verið búinn að eta prinsessuna“. Þegar hann hjó annað höfuðið af, sagði það: „Og allar hirðmeyjarnar hennar, hverja einustu“. Og þriðja höfuðið öskraði: „Hefði ég vitað þetta, liefði ég malað bróðir þinn

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.