Ljósberinn - 01.02.1946, Blaðsíða 19
LJÓSBERINN
39
Fyrir rúmum tuttugu árum — í marz
1925 — tóku sig til nokkrir ungir menn
hér í bæ, undir forustu RíkharSar Jóns-
sonar listamanns, og hlóðu upp snjó á
Lækjartorgi og mótuðu í hann sjómann
1 sjóklæðum, standandi í stafni róðrar-
báts, sem líka var búinn til úr snjó. Var
þetta gert til þess að minna vegfarend-
ur á að leggja fé í samskotabauk einn
mikinn, sem stóð hjá snjó-sjómannin-
um. Fyrir samskotum þessum stóð Slysa-
varnafélag íslands til bjálpar bágstödd-
um ættingjum sjómanna þeirra, sem fór-
ust í ofviðrinu mikla, sem geysaði í febr-
úarmánuði á undan. Þetta bar góðan ár-
angur á meðan þess naut við. En nótt-
ina og daginn eftir kom þíðviðri, svo
snjómaðurinn bráðnaði næstum jafnskjótt
og hann var kominn upp.
Ymsir tóku myndir af honum, til þess
að varðveita liann frá algerri glötun og
hér sjáið þið eina þeirra.