Ljósberinn - 01.03.1946, Page 2

Ljósberinn - 01.03.1946, Page 2
42 LJÓSBERINN Kirkja vors Gu'ðs er gamalt hús, Guðs mun þó bygging ei hrynja; Guð er til hjálpar henni fús, hvetnig sem stormarnir dynja; mannvirki rammgjörst féllu fljótt finnur enn skjólið kristin drótt herrans í húsinu forna. Herrann ei býr í húsum þeim, hagleg er manna verk þykja; musteri gjörvöll hér um heirn himnanna Drottin ei lykja; þó hefur bústað byggðan sér blessaður Guð í veröld hér, dýran af duftinu reistan. Hvar sem í náðar-nafni Krists nokkrir í sameining biðja, andans er friður œ þeim viss, orðin Guðs heilög þá styðja. Guð sjálfur er, sem orð hans blíö, alstaðar ncerri á hverri tíð, náðþyrstum sálum að svala. Hús þau, er kirkjur köllum vér, Kœr skulu oss öllum þó vera; Frelsarinn börn svo faðmi að sér, foreldrar þangað þau bera; Guðs hús er þar og himna hlið, hefur þar sáttmál gjört oss við hann, sem oss himinerfð gœddi. (Sálmabókin).

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.