Ljósberinn - 01.03.1946, Síða 9

Ljósberinn - 01.03.1946, Síða 9
LJÓSBERINN 49 ar dó. Pabbi var þá orðinn kristinn og hann leysti strax a£ henni böndin. En hvað hún gat vorkennt öllum litlum stúlkum, sem höfðu reyrða fætur, og áttu ekki kristinn pabba eins og hún. Meðan bún var að bugsa um þetta lækkaði sólin æ meir á lofti. Pabbi liain- aðist við að planta. Það jvar líkast því að plönturaðirnar hjá bonum lengdust í kapp við skuggana af trjánum. En hvað þeir voru orðnir langir og skrítnir. „Sérðu livað ég er stór?“ sagði litli bróð- ir, og benti á skuggann sinn. Pabbi rétti ekki úr sér fyrr en sólin var liorfin á bak við liæðirnar í vestri. Mei-hwa bjálpaði litla bróður upp í aðra körfuna og sjálf komst hún upp í hina hjálparlaust. Þau töluðu fátt á lieimleiðinni. Pabbi var þreyttur í bakinu og gekk svo hægt að körfurnar breyfðust varla. „Pabbi, af liverju er kvöldroði?“ spurði Mei-hwa. Yfir Tsnig-slmi-gó voru skýjaflókai-, rauðir eins og logandi eldar. „Eg get ekki útskýrt það, barnið mitt. Eg hef ekki gengið í skóla og Iært að lesa. Þegar þú ert orðin dálítið stærri, skalt þú fá að fara í kristniboðsskólann í Fu-loh-cbén“. „Pabbi, er himininn alltaf svona fall- egur að innan?“ „A himnum er miklu fegurra en þetta. f*etta eru ekki nema myndir, sem Guð % hengir út, til þess að við skulum vita hve fagrir bústaðir lians eru á himnum“. Meira get ég ekki sagt ykkur í þetta skifti úr þessari sögu. En ég get þó sagt ykkur hvernig hún fór. Þegar Mei-hwa var orðin stærri fór lnin í skóla. Það var hamingjusamasti dagurinn í lífi liennar, og í lífi pabba hennar, þótt þau yrðu þá að skilja í bili. Kínversk börn lilakka ekki til neins meira en að fara í skóla, og kínverskir foreldrar þrá ekkert meira, en að börnin þeirra geti lært eitthvað. Nú finnst mér ég alveg geta séð litlu Mei-hwa. Hún er í sínum fallegustu föt- um, með útsaumaða tauskó á fótunum og með svarta, digra fléttu langt niður á bak. Hún heldur á skólabókum undir annarri hendi. I hinni hendinni heldur hún á látúnskeri, fullu af viðar-glóðum, af því að ekki er nein upphitun í skól- anum. Þegar börnin eru öll komin inn í skólastofuna staðnæmast þau augna- blik, standa teinrétt og liorfa öll á kenn- arann, beygja sig öll samtímis djúpt fyr- ir honum, og setjast síðan. Þau eru í skól- anum allan daginn, skreppa aðeins heirn á máltíðum. Þau sem eru lengst að liafa nesti. Þegar ekki er verið að kenna, lesa þau það, sem hefir verið sett fyrir, öll samtímis, — livert í kapp við annað og eins liátt og þau geta. — Haldið þið ekki að heyrist til þeirra! Mest gaman þætti ykkur að geta horft á kínversku börnin, þegar liringt er út í frímínútur, og þau riðjast út úr dyrun- um, lilaupa út um allan skólagarð eins og fjaðrafok, með gáska og galsa og fara þar í ýmiskonar leiki, eins og t. d. 1. Blindingsleik. Elsta barnið í hópnum leikur hœnu og er vandlega bundið fyrir augu þess. Hin börnin leika kjúklinga. Þegar hæn- an kallar: „Tsú-tsú, pút-pút, komi mín- ir kjúklingar“, læðast kjúklingarnir að lienni úr öllum áttum, blaupa í kring- um liana tístandi en forðast að láta ná

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.