Ljósberinn - 01.03.1946, Qupperneq 18

Ljósberinn - 01.03.1946, Qupperneq 18
58 LJÓSBERINN Krisfín Ásgeirsdóttir frá Melshúsum »IIinn 3. febr. þ. á. andaðist á Landaspítalanum frú Kristín Ásbjörnsdóttir, ættuð frá Melshúsum á Akra- nesi, komin af góðu bændafólki í báðar ættir. Hún l)jó allan sinn búskap á Akranesi; var niaður liennar Jón Óiafsson, skipstjóri, frá Litlateig, var bann bróð- ir Bjarna sál. Ólafssonar skipstjóra og þeirra bræðra. Jón drukknaði 14. des. 1935 af mb. Iíjartani Ólafs- syni, ósamt einkasyni þeirra bjóna, Alexander. Munu allir fara nær uin það, hvílíkt áfall þetta liefur verið fyrir eftirlifandi ástvini. Tvær dætur átli bún eftir og eru þær báðar giftar konur á Akranesi. Margir fleiri liöfðu um sárt að binda, þegar mb. Kjartan Ólafsson fórst. En Kristín sál., seni þyngsta sorg hafði að bera, gat miðlað buggunarorðum til sinna samsyrgjenda. Nú er hvíldin fengin, og hún hefur nú fengið að Bameinast ástvinabópnum, sem á undan var farinn heiin til Drottins. En þeir hinir mörgu, samferða- nienn hennar, sem hér bíða ennþá sinnar burtferðar- stundar, munu geyma og blessa minningu bennar. Og þar sem hún ætíð var trúfastur vinur bæði Heim- ilisblaðsins og Ljósberans og vildi hvorugt þeirra missa af heimili sínu, þá skal henni hér þakkað l'yr- ir þann styrk, sem hún veitti þeim blöðum með því að skipa sér í þeirra vinahóp. Blessuð veri minning liennar. J. II. Það voru Indíánar, sem gáfu Niagara-fossunum nafn. Niagara þýðir „þruma vatsnins“. Fönikumenn, hinir fornu, fundu upp glerið. í sumuin héruðum í Síam láta menn „tattóvera“ tennurnar í sér. í tannglerjunginn eru rispaðar alls konar myndir, t. d. hakakross, logandi hjörtu. Chap- lin, Mikki Mús o. s. frv. eða þó fangamark kærust- unnar, og síðan er lit núið í rispurnar. Margir af farfuglum þeim, sem ferðast órlega þús- undir milna á milli landa, eru minna en 10 grönim á þyngd. Borgin Sherman í Conneticut-fylki í Bandaríkjun- um er slærsta borgin i fylkinu að flatarmáli, miðað við fólksfjölda. Ibúarnir eru að vísu aðeins 470, en síðastliðin 16 ár hefur enginn maður beðið bana í bílslysi þar í borg. Bankastjóri einn í New York, sem elskaði Guð, hefur fundið upp nýstárlega aðfcrð til þess að flytja boðskapinn um Jesú til hermannanna. Hann keypti mörg þúsund vasaspegla, 3 þumlunga í þvermál, og lét prenta aftan á þá: Jóh. 3, 16: „Því að svo elsk- aði Guð heiminn, að liann gaf son sinn eingetinn til þess, að bver sem á liann trúir, glatist ekki, lieldur liafi eilíft líf“. Neðan undir þessi orð lét hann svo prenta: „Ef þú vilt vita hvern Gu'ö hefur elska'ö svona, þá skaltu horfa á myndina hinum megin“. Speglin- um var útbýtt nieðal hermannanna með leyfi for- ingjanna. Þótt undarlegt kunni að virðast, þá er það samt 'staðreynd, að linir sveppir geta brotið sér braut í gegnum malhikað stræti! Stærslu lífverur jarðarinnar cru í jurtaríkniu, hin risastóru tré i Californíu scm eru allt að 1000 smál. á þyngd. Ilvalirnir, sem eru stundum yfir 100 smál. eru stærstu dýr, sem nokkurntíma hafa lifað á jörð- unni, því að risaskriðdýr miðaldanna, sein talin eru hafa verið þyngst, gcta alls ekki hafa verið meira en 50 smál. á þyngd. — Surnar marglittur geta orð- ið gífurlega stórar. Til er ein tegund, sem hefur skcl yfir sér. Skclin er 7 fet í þvermál og 18 þuml- ungar á þykkt. Þessi marglittutegund hefir þreifi- anga, sem eru 5 feta langir og gríðarlega ’ gildir. Einn slíkur angi er eins og meðal-hestur á þyngd! — Sumir risa-smokkfiskar vega allt að 3 smál.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.