Ljósberinn - 01.07.1946, Blaðsíða 10
126
LJÓSBERINN
Hið wsta stcirflpí vorrar alflar
Vér lesum um hin herfilegu skurðgoð
heiðingjanna, svo sem Molocli og Jagger-
naut, er blótað var mönnum, og oss
blöskrar slík fáfræði og blindni mann-
kynsins í þá daga.
En í miðri kristninni höfum vér voða-
legan og miskunnarlausan lijáguð, er
mennirnir tigna svo milljónum skiftir,
tilbiðja hann og færa honum fórnir. Það
er ölguðinn.
Hvers vegna færa þeir honum fórnir?
Til þess að njóta þess, er liann lætur í té:
víns, bjórs og brennivíns.
Hvenær færa þeir honum fórnir?
Bæði dag og nótt, og einkum í samkvæm-
um, á hátíðum. Þá fær liannHiátíðafórn-
ina.
Hverju fórna þeir?
1. Peningum, fyrst litlu, síðan meiru,
og loks aleigu sinni.
2. Klœfii, skœ'Si, mat og hita. Hugsið
til liinna mörgu, þúsundum saman, eink-
um vesalings barnanna, er kveljast af
hungri og kulda, af því að peningarnir
fara til vínguðsins og hofgoða lians,
þeirra, sem áfengisdrykkina búa til og
þeirra, sem selja þá.
3. Fri&i; áfengisdrykkirnir valda ófriði,
inni og úti, og ófriði í sálunni.
4. BlygSun; Iítið á þá, sem gera sig
að glóp í ölæði.
5. Frelsi; minnist þeirra, sem eru í
fangelsi; flestir hafa orðið glæpamenn
í Bakkusarþjónkun sinni, drykkjumenn
eru þrælar og fjötriun bundnir af
drykkjufýsn sinni.
6. Heilsa; áfengisdrykkjan veldur
veiklun, sjúkdómum, vitfirring.
7. Lífinu; sælu annars heims.
„Drykkjumenn skulu eigi Guðs ríki erfa“.
— Það er í stuttu máli voðalega margt,
allt samanlagt, það sem fórnað er á blót-
stalli þessa goðs, af láni, hagsæld og lífi.
Hvar er Kolbeinn sterki til að mölva
líkneski þetta eins og líkneski Þórs?
Þú ættir að minnsta kosti aldrei að
byrja á því að færa honum fórnir. Það
gæti svo farið, áður lýkur, að þú fórn-
aðir honum láni þínu í lífinu, lífinu
sjálfu og farsæld annars lieims.
Drekktu aldrei fyrsta staupiS.
(Tekið orSrétt úr „ísl. Goodtemplar“ 1893J.
Ungu vinir, sem þessa grein lesið.
Ihugið hana vel. Nú gengur öld drykkju-
skapar yfir landið okkar. Æskunni er
villugjarnt. Guðs orð segir: „Varið yð-
ur á áfengum drykkjum“.
Bæði hér í Reykjavík og víða í kaup-
túnum úti um land starfa bindindisfélög
og barnastúkur. Einnig sunnudagaskólar.
Venjið komur ykkar á slíka staði. Temjið
ykkur strax á æskuskeiði að styðja góð
málefni og vinnið allt í Drottins nafni.
Ég vildi óska, að þið öll, sem lesið Ljós-
berann, vilduð gera það lieit í hjarta
ykkar strax, að varast áfenga drykki,
og drekkiS aldrei fyrsta staupiS.
Til þess hjálpi yjkkur Gu8. J. H.