Ljósberinn - 01.08.1946, Page 8

Ljósberinn - 01.08.1946, Page 8
144 LJÓSBERINN „Nei!“ „Hvar áttu heima?“ „Þarna úti í götunni hjá henni móður- systur minni“. „Ef þú vilt fá dálitla sneið af hveiti- brauði, þá komdu með mér til bakarans, ég ætla að kaupa þar vitund af brauði lianda þér“. „Já, það þætti mér gott að fá“. „Eg keypti nú dálítið af brauði, og fékk honum það. Hann tók þegar til mat- ar síns, og af því var auðséð, að hann var glorhungraður. Eg spurði hann, hvort hann vildi meira. „Já, dálítið meira, ef þér viljið gera svo vel“, svaraði drengurinn. Eg keypti dálítið meira og fékk honum, og beið þangað til hann var búinn. Þá sagði ég við hann: „Svona, drengur minn, viltu nú fara með mér í sunnudagaskólann?“ „Þér hafið verið svo góður við mig“, svaraði pilturinn, „að nú vil ég fara með yður, hvert sem þér viljið, en gerið svo vel að hinkra dálítið við, meðan ég skrepp til frænku með það, sem eftir er af brauð- inu sem þér gáfuð mér, og þá skal ég fara með yður“. Pilturinn kom aftur um hæl og við urðum samferða í sunnudagaskólann. Þangað Iiafði harin aldrei komið áður. Hann gerði sér í hugarlund að sunnu- dagaskólinn væri samkomustaður, þar sem drengir væru liárreittir og klipnir í eyrun. En nú var hann leiddur til ungrar og vingjarnlegrar stúlku, og hún minntist ekki einu orði á fatagarmana hans. Furð- aði hann sig stórum á því. Hann varð nú stöðugur nemandi í sunnudagaskólanum, og sagði mörgum lagsbræðrum síniun frá honum, og gat fengið marga þeirra til að sækja hann. Að hér um bil tveim árum liðnum voru nokkrir drengjánna sendir til bænda vest- ur í Bandaríkjunum. Rauðhærði snáðinn minn var í þeim liópi. Fyrst framan af hafði ég þær spurnir af honum, að hann hegðaði sér vel og væri iðinn. Nú eru nokkur ár liðin síðan ég hef frétt af honurn, en ég efast ekki um, og ég er viss um, að liann er vænn og heiðarlegur maður, hvar-sem hann svo er niður kom- inn“, Að svo mæltu fór kaupmaður nokkrunt orðum um það, hversu miklu það varð- aði, að ná börnunum í stórborguni vor- um, þau sem vanrækt væru, inn í sunnu- dagaskólann. Að SVo mæltu settist hann niður, > I sama bili stóð upp á samkomunni rauðhærður maður, vel til fara, og mælti: „k]g er rauðhærði betlipilturinn frá New York; ég liafðist við í Vesturríkjun- um um nokkurra ára skeið. Lánið var með mér, og ég er nú efnaður maður og á stóran búgarð. Aldrei liefir sólin skinið á betri búgarð en búgarðinn minn. Hestar mínir standa hér úti fyrir dyrun- um, og að samkomunni lokinni væri mér kært að fá að hafa vininn minn gamla lieim með mér. Þar skal honum vel fagn- að og væri mér þökk á að fá að hafa hann sem lengst að gesti. Ég er nú forstöðu- maður fyrir sunnudagaskóla. Og allt það sem ég á í þessum heimi og vona að öðl- ast í öðrum lieimi, á ég því að þakka, að ég fékk að kynnast frelsara mínum Jesú, í sunnudagaskólanum. Hann er frelsari minn og enginn annar“.

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.