Ljósberinn - 01.08.1946, Síða 9

Ljósberinn - 01.08.1946, Síða 9
ljósberinn 145 Storraurinn hvein og öskraði í reiðan- um á litlu fiskisnekkjunni, þar sem hún hálsaði holskeflurnar og risti brunandi, brimlöðrandi bylgjudalina að gamal- kunnum leiðum út á fiskimiðin. Á söltu sjómannsmáli var þetta „skítug“ foráttu- veðursnótt í há-skammdeginu á árinu 1914—’15, við strendur Englands. Skýjaklakkar þyrluðust fyrir tunglið, en við og við brutust geislar þess gegn- Wm bólstraþykknið og vörpuðu silfur- björtum rákum á önnur fiskiskip, er ösl- uðu áfram í sömu erindum. Á hverjum bát var 6 eða 7 manna skips- böfn. „Svalt var enn á sævi-óalegir sjóf- ar“. Vqs og svalk var arfleifð þessara bugrökku manna, sem staðið höfðu í þrotlausu erfiði frá dagrenningu við fjörumaðksmokslur og skelfiskstekju í kyrru grUnnsævi í víkum og vogum við ströndina, þar sem helzt var skjól og var fyrir brotsjóum hafsins. Þá tók við úr- taka og beiting-langra, önglaþéttra lóða í hankir. En það varð að gera með mestu vandvirkni, svo ekki flæktist lóðin, þegar lagt' var. Þessu næst skyldi öllu þessu vera komið um borð í bátana og því öllu lokið fyrir rökkrið, en þá skyldu lóðirnar bigðar á djúpmiðin. Oftast voru sjómenn- irnir allar nætur á sjónum og eigi leitað ÞI lands fyrr en með aftureldingu með aflann. Og það var ekki fyrr en búið var að selja liann á fiskmarkaðinum í þorpinu °g „gera að línunni“,. að sjómennirnir gátu horfið heim til sín, og fengið sér foglsblund, eftir 36 stunda hvíldarlaus- I3AN an eril og vökur. En með öllu þessu sýndu þeir hver öðrum virðingu og viðurkenn- ingu, þegar fiskiflotinn brunaði í kapp- siglingu fram á miðin. Bræðralagið á sjónum krafðist ekki einungis þrotlausr- ar og skefjalausrar vinnu, heldur lietju- lundar og hugrakks hjarta til þess að mæta hinum síyfirvofandi liættiun á djúpunum. Slíkar hættur voru ætíð grimmdarfullar og uggvænlegar, en á annarri eins nótt og þessari voru þær hundrað sinnum háskalegri. Iláskalegur ógnarvoði var á sveimi á sjónum. í við- bót við löðrunga hins heiftaróða sjávar- guðs, hinnar undurförulu og lævísu þoku og öskrandi veðragnýs, bættist nú við liættan, sem stafaði af „litlu, svörtu kúl- unni“, sem ekki sást þá stundina, sem hún stakk sér í bylgjulöðrið. En þegar hún kom í ljós, gat lnin komið hugprúð- asta hjarta til að slá hraðar, eða gugna alveg. Þetta illyrmi lá þarna í fyrirsát undir sjólokunum og var þrungið svo miklu sprengiefni, að nægði til að sökkva stærð- ar skipi á örfáum augnablikum. Slík var ógnar-hættan og skelfingin, sem af tund- urduflunum stafaði, livort lieldur sem þau láu við festar eða voru á reki. Þegar bátarnir lyftust og hnigu á bár- unum, horfðu tvö arnhvöss augu undan sjóhattsbarðinu hjá hjálmunvölnum á hverjum einasta bát. Þau borfðu rann- sakandi út yfir djúpin, ef vera kynni að einhver óvinurinn væri nálægur, eða kæmi í ljós. Líf og öryggi félaganna valt

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.