Ljósberinn - 01.08.1946, Blaðsíða 12

Ljósberinn - 01.08.1946, Blaðsíða 12
148 LJÓSBERINN OTTI DROTTINS ER UPPHAF VIZKUNNAR „Ótti Drottins er upphaf speki og fögur liyggindi þeim, sem iðka hann. Lofstír hans varir að ei- lifu“. (Sálm. 111, 10). Hún amraa fckk lienni Láru dóttur- dóttur sinni eittlivað til að sauma, áður en hún fór að heiman. „Lára mín!“ sagði- hún, „mig langar til að þú ljúkir við að sauma þetta, meðan ég skrepp út í bæ- inn“. „Já, amma, það skai ég víst gera“. Og svo fór Anna, amma hennar, leiðar sinnar og kvaddi ástúðlega. En hún var ekki fyrr komin út úr dyrunum, en Lára var tekin að sauma af kappi. ITún var einstaklega hlýðin og skyldurækin með afbrigðum. En Lára fékk ekki lengi næði til að sarnna; skólasystir hennar ein kom til hennar og sagði: „Lára, viltu ekki fara vit með mér? Ó, veðrið verður svo indælt núna seinnipart dagsins. „Já, víst yrði það ánægjulegt“, sagði Lára litla, „en livin amrna fékk mér þetta og bað mig að Ijúka við að sauma það, meðan hún væri að heiman, og þvi lofaði ég og það verð ég að efna“. „Geturðu ekki gert það í eitthvert annað skifti?“ spurði stalla hennar. „Nei, amma gerir ráð fyrir að ég saumi einmitt þetta, sem eflir er af svuntunni hennar“, svaraði Lára hiklaust. Stalla hennar stökk þá burt frá henni með fyrir- litningarsvip. Stundu síðar kom Hrói bróðir hennar og hrópaði af mikilli lirifningu: „Lára, komdu nú með mér út á völl og sjáðu fallegu flugdrekana mína Iyfta sér til flugs. Ó, livað það verður gaman!“ „Já, víst yrði það gaman!“ svaraði Lára með mestu ró, „en amma bað mig að vera bviin að falda svuntuna, þegar hún kæmi aftur heinv“. „ITvaða bull!“ orgaði Ilrói, og kippti svuntunni úr hendi systur sinnar. „Það Jiggur ekkert á með þetta, komdu heldur og horfðu á drekana mína“. „Æ, góði Hrói“, sagði Lára blíðlega, „ég verð að lilýða ömmu“. Þá þótti ITróa dálítið, en ég ímynda mér, að liann hafi ekki virt systur sína minna fyrir þetta. En nú kom hann Glóinn, eftirlætisgoð- ið liennar Láru, og þegar liann sá tvinna- keflið hennar Láru liggja á gólfinu, þá hófst nvv heldur en ekki fjörugur leikur. Lára hafði hið mesta gaman af að leika sér við hvolpinn sinn, en nvi kallaði hún til lians og sagði: „Ekki núna, galgopi litli. Allt liefir sinn tíma. Verkið mitt verður að ganga fyrir leiknum við þig“. GIói var eklci vel ánægður með þetta, Og óðara en Lára hafði lokið sínu verki, spratt liann upp, leit á Láru þeim augvun, að vvr þeiin mátti lesa: „Nú getum við farið að leika okkur!“ Svona gekk hlýðnin og guðsóttinn gegn um allt líf Láru og liéldu henni á rélt- um vegi. Guð gefi sérhverju barni sams- konar leiðarþráð. En sum þeirra slíta hann af sér eða skeyta ekki neitt unv hann. En hið bezta, sem liægt er að segja um Láru, var það, að hún bað frelsara sinn stöðugt að gefa sér náð til að lialda fast í þennan þráð. B. J.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.