Ljósberinn - 01.10.1946, Síða 20
176
LJÓSBERINN
Utanstéttarmenn á Indlandi
Kafli iír bókinni: Heiðindómur og kristindómur á Indlandi cftir kristniboSsprestinn J. J. OSTAD
Þegar liingað berst sú fregn, að á Ind-
landi séu 60 milljónir utanstéttarmanna
(Paria), þá nær það yfir Paria og aðr-
ar kynkvíslir.
Að skilningi Indverja (Hindúa) lieyra
Pariar ekki mannkyninu til. Og ef svo
er, þá eru þeir afhrök, sem líkja má við
sorphaug, sem gerður er svo langt utan
mannabyggða, sem föng eru á.
Pariar eru fyrirlitnir og þykja svo við-
urstyggilegir, að allar hinar stéttir þjóð-
félagsins, sem eigi eiu færri en 1950
að tölu; þeir fá eigi að búa í borgunum,
heldur fyrir utan allt, þar sem stéttamenn
hafa sorphauga sína; þar búa Pariar
sér kofa úr liálmi eða tjöld, saumuð sam-
an úr pokaræflum.
Eins og eðlilegt er, þá eru Pariar fá-
tækasta fólkið á Indlandi, en jafnframt
allra manna þolinmóðastir. En hróðugir
eru þeir og ánægðir með hlutskipti sitt.
Þeir vita, að þeir heyra til hinum útskúf-
uðu.
En ef ungan mann og fríðan af hærri
stétt skyldi bera að kofadyrum stéttar-
leysingja og biðla til dóttur hans, þá
mundi hann í allri vinsemd, en þó ský-
laust, synja honum ráðahagsins. Því að
stéttleysinginn veit, að það er skýlaus
vilji guðanna, að hann og niðjar lians
heyri stéttleysingjum til,
Honum er það svo mikið alvörumál, ef
brotinn er vilji guðanna, að hann vill
heldur lifa lífi sínu í pokatjaldinu en að
særa guðina að reita þá til reiði. Hann
veit, að þar sem guðirnir liafa ætlað Pari-
um lægsta stig í mannkyninu, þá er það
réttlát hegning fyrir syndir feðra hans
og hans sjálfs.
En það er annars alveg óhugsanlegt,
að ungur maður af hærri stétt biðji Paria-
stúlku sér til handa. Til þess er of mikið
djúp milli þeirra. Og af því hlytist styrj-
öld í heimi guðanna milli guða stéttleys-
ingjanna og guða stéttanna.
Þegar bramini og Parii hittast, tekur
bramininn á sig langan krók til þess að
sjá um, að skuggann af hinum óhreina
paria falli ekki á hann. Því að ef það
stórslys kynni til að vilja, þá yrði brama-
inn að ganga gegnum hinar kvalafyllstu
hreinsanir — ganga gegnum eld og vatn
og hafa kúamykju upp í háls til að full-
nægja guðinum Kristna, Vishnu og þús-
und öðrum stórtignum í andaheiminum
og eyða í það mörgum stundum, til að
komast aftur til vegs og virðingar meðal
braminanna.
Þjónandi stéttin (Sudra) má ekki
stunda neina bóklega iðn. Indverji sá,
er tæki að sér að kenna Sudra bóklega
list, á sér þá refsingu vísa að komast á
sorphauginn í næstu tilveru. Og hafi ein-
hver lært af sjálfum sér að lesa, þá er
lionum bannað að lesa hin helgu rit Ind-
verja (Veda). í undanfarandi tilverum