Ljósberinn - 01.06.1952, Blaðsíða 3
32. ÁRG.
• REYKJAVÍK, SUMARIÐ 1952
5.-6. TBL.
H
FAÐIR VDR, ÞU 5EM ERT A HIMNUM
I
Faðir vor, þú sem ert á himnum. Með þessu
dýrlega ávarpi hefst bænin, sem Jesús kenndi
okkur.
Þetta er dásamlegt ávarp. Öll börn vita,
hve gott er að leita til pabba. Þau þurfa þess
svo oft. Það er svo margt, sem við getum ekki
ráðið við, á meöan við erum litil. Við komumst
svo oft í vanda. Þá er allt-
af svo gott að leita til
pabba. Pabbi getur svo oft
hjálpað okkur. Hann kann
ráð við flestu. En stund-
um kemur það fyrir, að við
biðjum pabba um eitthvað,
sem hann vill ekki gefa
okkur eða gera fyrir okkur.
Hann sér nefnilega oft
betur en við hvað holt er
fyrir börnin hans. Við
biðjum jafnvel stundum
um það, sem gæti orðið
okkur til tjóns, ef við
fengum það. Þá er svo
gott, að pabbi hefur vit
fyrir börnunum• sínum.
Það er bœði gott og öruggt
að leita til pabba.
Nú vill Jesú kenna okk-
r.r að kalla Guð á himn-
um FÖÐUR okkar. Hann vill kenna okkur
að tala við hann og biðja hann, eins og við
biðjum pabba okkar á meðan við erum lítil.
Hann vill kenna okkur, að Guð sé eins
NÁLÆGUR okkur eins og pabbi okkar, þeg-
ar við leitum til hans. Guð er alls ekki langt í
burtu. Hann er nálœgt okkur, hvar sem við
erum. Við getum alltaf á hverri stundu talað
við hann um allt, sem fyrir okkur kemur og á
daga okkar drífur. Hann er meira að segja
enn þá fúsari til að hjálpa okkur en sá bezti
jarðneski faðir.
Jesús vill líka kenna
okkur, hve mikill og mátt-
ugur Guð faðir okkar er. —
Hann er á HIMNUM. Hann
er sá Guð, sem hefur skap-
að alla hluti. Hann á allt
vald á himni og jörðu. Þó
er hann svo nálœgur okk-
ur, að við mannanna börn
megum kalla hann föður
okkar og tala við hann eins
og börn tala við pabba
sinn.
Þessa bæn mega ALLIR
biðja. Guð er því faðir
allra manna og allir menn
á jórðunni eru brœður.
Við eigum því að skoða
alla menn brœður okkar
og systur. Hvort sem við
hittum góða menn eða
vonda, hvíta menn, gula,
brúna, eða svarta, þá eru þeir allir brœður
okkar, og okkur ber að elska þá og hjálpa þeim
eftir beztu getu.
Góði Jesú, kenndu okkur öllum að tala við
föður okkar á himnum.